30.12.2009 | 23:37
Alþingi yfir móðuna miklu
Róbert Marskálkur sem sjaldan opnar munninn án þess að ergja mig í leiðinni hitti aldrei þessu vant naglann á höfuðið í stuttri greinargerð sinni fyrir stundu. Hann sagði að samþykkt Icesave-ábyrgðarinnar væri upphafið að einhverju nýju og ég held að það sé hreint ekki orðum aukið. Alþingi hefur grafið sér gröf í þeirri mynd sem við þekkjum það og varla nokkur sála sem trúir að eitthvað skynsamlegt komi úr þeirri átt.
Nú þarf almenningur að sýna og sanna að valdið kemur frá fólkinu. Mætum öll fyrir utan Bessastaði á morgun og krefjumst þess að forsetinn synji þessum ólögum staðfestingar. Á nýju ári krefjumst við nýrrar stjórnarskrár án nokkurrar aðkomu stjórnmálaflokka eða misheppnaðra stjórnmálamanna. Þá fyrst verður hægt að tala um nýtt upphaf.
Alþingi R.I.P.
Alþingi samþykkti Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.12.2009 kl. 00:33 | Facebook
Athugasemdir
Sæll. Svo mun ekki vera, já Alþingi er búið að vera þú og ég munum borga á sama hátt og börn okkar og barnabörn og 'oli mun segja já.
Kv Sigurjón
Rauða Ljónið, 30.12.2009 kl. 23:49
Tek undir með þér og trúi ekki öðru en fjölmeni verði við Bessastaði.
Þórólfur Ingvarsson, 30.12.2009 kl. 23:51
Sjáumst á Bessastöðum!
Ingifríður Ragna Skúladóttir, 31.12.2009 kl. 00:19
Svo sannarlega verður að fjöl menna á Bessatöðum.
Rauða Ljónið, 31.12.2009 kl. 00:24
Já, sjáumst öll á Bessastöðum (í hlýjum fötum) og sýnum hvað í okkur býr.
Svo minni ég á indefence.is þó að það virðist ekki þurfa. Yfir 6.000 hafa undirritað í kvöld og talan hækkar ört!
Sigurður Hrellir, 31.12.2009 kl. 00:31
Ég mæti en Gunni er á vakt sjáumst.
Helga Þórðardóttir, 31.12.2009 kl. 01:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.