Sprungin pera

Tveir jólasveinarÉg á varla orð. Ráðherra sem var ráðherra í Þingvallastjórninni kannast ekki við kynningu á stöðu Icesave samninganna sem unnin var sérstaklega fyrir hann af rándýrri breskri lögfræðistofu. Það er greinilega sprungin pera þarna einhvers staðar og líklega ekki lesbjart. Sá hann nokkuð reikninginn fyrir kynninguna heldur?

Það er útlit fyrir að Landsdómur hafi í nógu að snúast á næstu árum ef svo fer sem horfir.


mbl.is Steingrímur segist trúa Össuri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við verðum að stöðva þetta sjálf svona gengur þetta ekki.

Sigurður Haraldsson, 30.12.2009 kl. 00:57

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Sammála Sigurði hér.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 30.12.2009 kl. 01:07

3 Smámynd: Halla Rut

Og ef hann fór ekki á kynninguna sem þeir voru búnir að borga fyrir að yrði haldin er hann þá ekki algjörlega vanhæfur? Kaupa kynningu en hlusta svo ekki á hana. Skiptir ekki máli hvort hann sá hana eða ekki það er bæði jafnslæmt fyrir hann í þessu mikla máli.

Halla Rut , 30.12.2009 kl. 01:26

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þegar ég var á austurvelli í janúar var von mín að Össur færi frá sú von rættist ekki hvað er hann að gera þarna maður spyr sig.

Sigurður Haraldsson, 30.12.2009 kl. 01:31

5 Smámynd: Halla Rut

Hann, Össur, eins og allir álfavinir hans í Samfylkingunni, langar svo ofboðslega í stól í stóra húsinu í Brussel. Þau eru öll sem eitt til í að fórna öllu fyrir það. Landráðamenn og ekkert annað.

Halla Rut , 30.12.2009 kl. 02:05

6 identicon

Mæta niður á Alþingi og henda þessu landráða/lygapakki ÚT

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 02:27

7 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Íslensk stjórnvöld fá breska lögmannsstofu til að kanna málið og borga sjálfsagt ekki lítið fyrir. Sjálfur utanríkisráðherrann hefur ekki svo mikið fyrir því að skoða álitið. Er ekki allt í lagi?????????????????????????????????

Guðmundur St Ragnarsson, 30.12.2009 kl. 04:01

8 Smámynd: Sigurður Hrellir

Össur ætti auðvitað að hafa haft vit á að draga sig í hlé frá stjórnmálum eftir að stjórnin hrökklaðist frá í janúar. En eitthvað er af skornum skammti hjá honum, líkt og hjá fleiri samflokksmönnum hans.

Sigurður Hrellir, 30.12.2009 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband