Sjálfstæðiskonur

Úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík koma varla á óvart. Sitjandi þingmenn eru í öllum efstu sætum. Fyrsti nýliðinn er í 8. sæti! Ennfremur eru konur ekki hátt skrifaðar hjá þeim sem tóku þátt í prófkjörinu, sérstaklega ekki í efstu sætum. Efsta konan í 4. sæti er eiginkona forstjóra Alcoa á Íslandi sem ætti að teljast vanhæf vegna tengsla sinna. Hvernig ætlar hún að gæta hlutleysis í umræðu um álver og stóriðju?

Katrín FjeldstedHvað er þetta annars með Sjálfstæðisflokkinn og konur? Það er eftirminnilegt þegar læknirinn og umhverfisverndarsinninn Katrín Fjeldsted bauð sig fram í prófkjöri og lenti úti í kuldanum í 12. sæti. Hafa karlkyns Sjálfstæðismenn sýnt að þeir séu starfi sínu vaxnir þegar mikið liggur við? Eða eru þeir ef til vill steingerðir kerfiskarlar sem hafa helst það hlutverk að standa vörð um sérhagsmuni flokkeigenda og stöðva framgöngu ýmissa þjóðþrifamála? Ég fæ ekki betur séð en að framvarðasveit flokksins í Reykjavík muni berjast gegn aðildarviðræðum við ESB og vilja halda Íslandi einangruðu í krumlum sérhagmunasamtaka eins og LÍÚ.

Skyldu ábyrgar konur ætla að kjósa þessa sömu karla þann 25. apríl?


mbl.is Prófkjörið kostaði 442 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því er nú ver og miður, trúin á Flokkinn er ofar öllu. Svo trúa þær líka lygunum sem dunið hafa yfir okkur frá þessum mönnum. Einnig eiga þær erfitt með að viðurkenna að konur geti gert eins vel og karlar, þær eru jú eyðsluklær og tilfinningaverur. Nú hætti ég, ég verð svo reið!!!

Hildur Harðardóttir (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 08:48

2 Smámynd: Sigurður Hrellir

Hildur, vertu reið en gerðu það sem þú getur til að breyta þessu. Borgarahreyfingunni vantar fleiri konur til að taka þátt. Einhverra hluta vegna virðast karlar miklu frekar gefa kost á sér. Ef þú hefur áhuga láttu okkur þá vita sem fyrst, Jóhann (897-7099) eða Lilja (895-6210).

Sigurður Hrellir, 17.3.2009 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband