Læ = brögð, svik

Hinn tungulipri varaformaður Framsóknarflokksins lét hafa eftir sér á leið á fundinn: "Loft er lævi blandið." Læ merkir brögð eða svik og því væri fróðlegt að vita hverjir það eru sem beita brögðum og hverjir eru sviknir. Kannski var hann bara með hugann við Nýsjálenskt lambakjöt?

mbl.is Þingflokkur Framsóknarflokks á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn er lævi blandin

Skyldu kjósendur Sjálfstæðisflokksins vera sáttir við framgöngu formannsins í stjórnarmyndunarviðræðunum? Hann varpaði boltanum strax yfir til Jóns 6 prósent og settist niður í pásu. Láta bara Framsókn um að ráða þessu. Nú hafa þeir verið tvístígandi í 4 daga - "Should I stay or should I go?" Því miður verður seint sagt að Geir sé framtakssamur stjórnmálamaður.

 

Ég bendi Geir og öðrum á áskorun frá Íslandshreyfingunni.


mbl.is Vaxandi vantrú á framhald stjórnarsamstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaut hann sig í fótinn?

Ég bendi á það að Össur Skarphéðinsson var einn þeirra 31 þingmanna sem samþykktu þau ólög árið 2000 (sjá 108. gr.) sem í raun tryggðu stjórnarflokkunum þingmeirihluta í nýafstöðnum kosningum. Hann getur sjálfum sér um kennt ef hann þarf að dúsa í stjórnarandstöðu næstu 4 árin.

Lesið einnig mikilvæg skilaboð hér!



mbl.is Össur: Samfylkingin á í engum formlegum stjórnarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvæg skilaboð til GeirJóns

Ég bendi þessum ágætu herrum og öllum öðrum sem áhuga hafa á stjórnmálum á glóðvolg og áríðandi skilaboð sem lesa má á heimasíðu Íslandshreyfingarinnar www.xi.is
mbl.is Viðræður stjórnarflokka enn í gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru þingmenn Íslandshreyfingarinnar?

Þegar lög um kosningar til Alþingins voru endurskoðuð árið 2000 var sakleysisleg setning í 108. gr. svo hljóðandi: "Þau stjórnmálasamtök koma ein til álita við úthlutun jöfnunarsæta sem hlotið hafa a.m.k. fimm af hundraði af gildum atkvæðum á landinu öllu".  Tilgangurinn með þessari grein hefur nú komið í ljós og geta tæplega 6000 kjósendur Íslandshreyfingarinnar "þakkað" þingmönnum úr flestum flokkum þá framsýni að ræna þá 2 fulltrúum á Alþingi. Í ljósi þess að hér skipta 2 fulltrúar öllu máli um það hvort að stjórnin stendur eða fellur og stóriðjustefnan sömuleiðis, hljóta menn að velta því fyrir sér hvort að völva hafi á sínum tíma verið fengin til að sjá fyrir um úrslit kosninganna 2007.


Einnig má færa ágæt rök fyrir því að umtalsverður hópur kjósenda hafi látið fæla sig frá því að kjósa Íslandshreyfinguna út af áðurnefndri 5% reglu. Í aðdraganda kosninganna var ráðist að okkur úr öllum áttum og fullyrt að atkvæði greidd Íslandshreyfingunni gætu hæglega fallið dauð niður. Hjörleifur Guttormsson og ritsjóri Morgunblaðsins urðu skoðanabræður í þetta eina sinn ásamt mörgum öðrum stjórnmálamönnum sem opinberuðu skort sinn á lýðræðishugsjónum.

www.islandshreyfingin.is 


mbl.is Búið að ganga frá gögnum í þremur kjördæmum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rödd skynseminnar?

Því miður eru litlar líkur á því að hlustað verði á sjaldgæfa skynsemisrödd innan Framsóknarflokksins. Það virðist vera í eðli Framsóknarmanna að líta á það sem sjáfsagðan hlut að þeir sitji við völd sama hvað kjósendur segja.

Flokkurinn er hættur að koma á óvart. Það er orðin regla hjá þeim að segja eitt og gera annað. Kosningaloforðin ekki 5 aura virði. Það er að vísu ágætt að fólk viti hvar það hefur þá.

Nú tala þeir um að gera þingmennina að ráðherrum og varaþingmennina að fullgildum þingmönnum. Líklega eru Jón og Jónína líka ráðherraefni hinnar "nýju" ríkisstjórnar. Jón með sín 6,2% og Jónína með sín 5,9%.

Það væri hægt að spara mikinn tíma og peninga með því að sleppa kosningunum. Það er orðið eins konar náttúrulögmál að Sjálfstæðisflokkurinn fær sín 35-40% og hækjan reddar því sem upp á vantar. Saman mynda þessir flokkar ríkisstjórn, um það þarf varla að fjölyrða. Líklega er samt hyggilegast að breyta 5% reglunni á næsta kjörtímabili ef ske kynni að fylgi Framsóknar haldi áfram að sturtast niður. Framsóknarmenn þurfa að vísu ekki að fylgja lögum og reglum eins og dæmin sýna.

Það má samt ekki gleymast að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem ber mikla ábyrgð á þessum óknyttaormi sem þeir eru sífellt með í eftirdragi.


mbl.is Framhald núverandi stjórnarsamstarfs feigðarflan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þynningarsvæði?

426692A Svona vilja sumir meina að nýtt álver Norðuráls í Helguvík muni líta út. Athygli vekur að þynningarsvæðið hefur óvænt áhrif á bæði menn og tré. Eru þetta tilvonandi starfsmenn álversins sem þarna sjást eða bara fólk á heilsubótargöngu?

mbl.is Skýrsla vegna umhverfismats álvers í Helguvík lögð fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurtekið efni

Það kæmi nú varla á óvart þó að vilji kjósenda væri hunsaður enn eina
ferðina. Bingi rétt slefaði inn í fyrravor og fékk að launum hálft
konungsríkið. Framsóknarformanninum tókst að vísu ekki jafn vel upp en
það skiptir engu máli. Bæði honum og tilvonandi tengdamóður Lúsíu
Seleste verður eflaust fundið hlutverk við hæfi í einhverju
ráðuneytinu. Svo þarf jú að einkavinavæða Landsvirkjun!
mbl.is Líklegast að stjórnin sitji áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegar myndir á YouTube

Hér eru tvær skemmtilegar myndir sem eru mér að skapi!

 

 EKKERT STOPP!!!

 

GRÆNU KARLARNIR

 


Íslandshreyfingin er ekki sérhagsmunasamtök

Eins og blasir við á heimasíðu Íslandshreyfingarinnar er mikil áhersla lögð á að undanskila ekki minnihlutahópa í þjóðfélaginu. Hvort heldur sem að það eru innflytjendur, börn, aldraðir, öryrkjar eða sjúkir einstaklingar, þýðir ekki að láta eins og "þetta fólk" sé eintóm byrði á þjóðfélaginu eða vandamál. Þar leynast vannýtt tækifæri og mannauður sem aldrei fær að njóta sín. Það er til skammar þegar "góðærið" er bara fyrir suma og ekki aðra. Þeir sem vilja sjá réttlátara samfélag ættu að setja X við i.
mbl.is Stefna Íslandshreyfingarinnar birt á táknmáli á vef flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband