3.5.2007 | 16:43
Hvar er trúverðugleikinn???
Jónína spyr hvar trúverðugleikinn sé? Það skýtur skökku við að hún hafi áhuga á að vita það. Trúverðugleiki hefur ekki verið sterkasta hlið Framsóknarmanna um langa hríð en öðru máli gegnir um spillingu. Jónína hefur nú bætst við stóran hóp þeirra flokkssystkina sinna sem eru með svartan blett á tungunni. Það er synd.
Finnst fólki virkilega ekki þörf að endurnýja áhöfn þjóðarskútunnar? Íslandshreyfingin er valkostur fyrir hina sem telja þörf á því. Kynnið ykkur heiðarlegt fólk á www.islandshreyfingin.is
![]() |
Kastljós svarar Jónínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2007 | 11:27
Þrælalandið Ísland?
Nú hefur það komið í ljós sem búast mátti við. Erlent starfsfólk við Kárahnjúka hefur verið misnotað! Vilja Íslendingar halda áfram á þessari línu, þ.e. að stinga höfðinu í sandinn og láta eins og sér komi þetta ekki við. Það er jú erlent fyrirtæki (Impregilo) með vægast sagt vafasamt orðspor sem lætur fólkið starfa við ömurlegar starfsaðstæður, en ábyrgðin liggur samt hjá íslenskum ráðamönnum. Ætlar fólk að þegja og láta sem ekkert sé?
Íslandshreyfingin vill að komi verði fram við innflytjendur og erlent verkafólk eins og mönnum sæmir! www.islandshreyfingin.is
![]() |
Of seint gripið til aðgerða í göngum við Kárahnjúka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2007 | 16:59
Hvað Mogginn sér
13.4.2007 | 16:01
Hjörleifi svarað.
Íslandshreyfingin - lifandi land var stofnuð í þeim tilgangi að fjölga í græna liðinu. Henni er ætlað að vera málsvari þeirra sem láta sig umhverfismál miklu skipta en geta af ýmsum öðrum ástæðum ekki kosið Vinstri græna. Eitt helsta baráttumál hennar er að styðja við nýsköpun og frumlega atvinnustarfsemi aðra en þá sem skaðar land og þjóð. Hún leggur áherslu á sjálfbæra nýtingu auðlindanna og kýs gæði umfram magn og fjölbreytni umfram einsleitni. "Græn-vöxtur" er góðkynja hagvöxtur. Hún styður heils hugar við einkaframtakið og er á móti auknum skattaálögum. Hún vill sjá blómlega starfsemi í öllum byggðum.
Framtíðarlandið ætlaði sér svipaða leið, en í kosningu meðal félagsmanna varð niðurstaðan sú að ekki skyldi bjóða fram til Alþingis. Hjörleifur beitti sér þar mjög einarðlega gegn hugmyndinni og talaði oft og lengi á móti henni. Það má því vera ljóst að hann vill ekki undir neinum kringumstæðum sjá annað stjórnmálaafl sem leggur höfuðáherslu á umhverfismál. Heldur vill hann trúa því að allir svarnir umhverfissinnar muni styðja VG hvar svo sem önnur áherslumál þeirra liggja.
Gallinn við þetta útspil Hjörleifs er sá að hann er að spilla fyrir vinnu okkar við framboðið. Síðustu daga og vikur hefur verið unnið að því fullum fetum að koma saman trúverðugri stefnu og málefnaskrá. Það hafa verið haldir fundir víða um land með fulltrúum hins nýja framboðs. Síðast í gær var mjög spennandi fundur í Iðnó þar sem Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda og Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ töluðu fyrir sínum áherslumálum og svöruðu spurningum frá gestum í sal.
Mikill tími hefur farið í að finna frambærilegt fólk til að leiða alla framboðslistana. Þeirri vinnu er nú að mestu lokið og verða listarnir kynntir nú um helgina. Vonumst við til að það slái á allar úrtöluraddir í eitt skipti fyrir öll.
Að bjóða fram til Alþingis er lýðræðisleg leið til þess að hafa áhrif á mikilvæg mál og ná fram breytingum. Það er líka áhættusöm leið því að aldrei má ganga út frá því sem vísu að nýtt framboð komi fólki inn á þing. Aðrar leiðir eru vissulega fyrir hendi, t.d. að "styrkja" stjórnmálaflokka og fá þess í stað sporslur og fyrirgreiðslur líkt og tíðkast hér í ríkum mæli. Einnig er hægt að fara út í yfirtöku á eldri flokkum og breyta þeim í sérhagsmunasamtök án þess að sauðtryggir kjósendur hætti stuðningi sínum. Loks er hægt að beita þingmenn þrýstingi líkt og Framtíðarlandið gerði með auglýsingaherferð og undirskriftasöfnun sinni. Hjörleifi hugnast sú leið trúlega best en við sem stöndum að Íslandshreyfingunni - lifandi landi teljum að líklegast til árangurs sé að koma okkar fólki inn á þing. Annars værum við ekki að þessu.
Að ætla að gera Ómar og Íslandshreyfinguna ábyrga fyrir því ef ríkisstjórnin fær aukinn byr í seglin er afar ósanngjarnt og ætti Hjörleifur að hafa hugsað sig um tvisvar áður en hann ákvað að ráðast opinberlega gegn okkur. Hins vegar eru 4 vikur til kosninga og mjög margir kjósendur enn óákveðnir. Við munum kynna okkar málstað eins víða og unnt er og erum þakklát öllum þeim sem aðstoða okkur í því sambandi.
Af hverju biðlar Hjörleifur ekki frekar til þeirra umhverfissinna sem kosið hafa Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk og hvetur þá til að styðja Íslandshreyfinguna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.4.2007 kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2007 | 16:55
Er Sjálfstæðisflokkurinn trúfélag?
![]() |
VG og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig fylgi í Reykjavík suður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.4.2007 | 15:03
R.I.P.
![]() |
Framsóknarmenn boða áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.4.2007 | 20:05
Ætli Jón hafi frétt af þessu?
![]() |
Alcan íhugar að reisa álver á Keilisnesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.4.2007 | 21:05
3/3

![]() |
Geir nýtur mestra vinsælda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2007 | 00:15
Þyrnirós, ertu loksins vöknuð?
landinu öllu. Takk fyrir, öll þið 6382 frábæru manneskur og sér í lagi
þau 88 sem gerðu gæfumuninn... Hver sem þið eruð, skál fyrir
framtíðinni! Nú er von um að álversmartröðin taki einhvern enda og
íslendingar vakni upp af Þyrnirósarsvefni á 21. öldinni.
![]() |
Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2007 | 19:49
Til hamingju Íslandshreyfing
Áfram Íslandshreyfing, ykkar erindi er brýnt!
![]() |
Margrét: Stjórnmál 21. aldar snúast um mannauð, hugvit og nýsköpun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |