Allir út að grilla...

Ég verð að viðurkenna að ég er orðinn mjög svekktur. Hlustaði með öðru eyranu á ræðu forsætisráðherra á Austurvelli í fyrradag og skilaboð til landsmanna um að nú skuli sparað, bæði í akstri og eyðslu almennt.

Sjálfur er ég fyrir löngu síðan búinn að grípa til sparnaðaraðgerða - fer flestra minna ferða á reiðhjóli, hreyfi fjölskyldubílinn lítið sem ekkert, skipulegg matarinnkaup með hámarksnýtingu í huga og hef skorið niður aðra eyðslu. Samt hækka útgjöldin í krónum talið mánuð eftir mánuð. Húsnæðislánin spila þar stórt hlutverk en bæði gengi krónunnar og háir vextir vega þyngst.

Flokkur Geirs H. Haarde og félaga hefur löngum stært sig af stöðugleika og verið með fullyrðingar í aðdraganda kosninga um að þeim einum sé treystandi fyrir fjármálastjórn ríkis og þjóðar. Hvað skyldu þeir láta sér detta í hug fyrir næstu kosningar? Græðum á daginn og grillum á kvöldin!? Sick

Sjálfstæðisflokkurinn er augljóslega með buxurnar niðrum sig í mörgum stórum málum. Ef framsýnir stjórnmálamenn hefðu verið við völd sl. 10-15 ár væri Ísland fyrir löngu orðið hluti af ES. Þjóðarskútan væri ekki í ólgusjó og skuldir landsmanna á hraðferð til andskotans. Hér væru ráðherrar og alþingismenn farnir að sýna gott fordæmi og aka um á vistvænum ökutækjum vegna þess að það er æskilegt af umhverfislegum og þjóðhagslegum ástæðum. Hér væri þjóðfélag með hátt menntunarstig, byggt á þekkingariðnaði og nýsköpun. Byggðalög væru tæpast í rúst vegna ósanngjarnrar fiskveiðistefnu. Vestfirðingar væru væntanlega með hugann við annað en olíuhreinsistöð og vegabætur. Íslenskir skattgreiðendur væru örugglega ekki að greiða niður stóriðju.

 

 


mbl.is Sveiflur á gengi krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Held nu frekar að þetta séu bankarnir eykur þetta ekki gjaldeyrisegin þeirra siðan eykur þetta líka visitölutryggðu lanin sem þeir eiga og að lokum sennilega hækkar þetta húsnæðið sem bankarnir eiga lika Held að  pólitikusar séu i raun orðnir

Jón Aðalsteinn Jónsson, 19.6.2008 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband