BULL

"Aldrei stóð til að þingframboð fengju gjaldfrjálsa kynningu í Sjónvarpinu."

Þetta hljómar einkennilega í mínum eyrum því að 27. mars sl. talaði ég sjálfur við fulltrúa RÚV í síma og fékk þær upplýsingar að 10 mín. gjaldfrjáls kynning stæði öllum flokkum til boða. Það var að vísu tekið fram að frumkvæði ætti að koma frá þeim sjálfum og að sett væru skilyrði um að meirihluti framboða vildu taka þátt.

Í framhaldi af þessu hafði ég samband við fulltrúa allra hinna flokkanna og fékk jákvæðar undirtektir frá D, L, F og P. Framsókn var hlutlaus en Samfylking og VG fremur neikvæð. Ég spurði hvernig stæði á því að vinstri flokkarnir ætluðu að afþakka ókeypis kynningu í Sjónvarpinu en lítið var um svör.

Það stenst því illa sem Ingólfur Bjarni fullyrðir og er vissulega yfirklór yfir það að Ríkisútvarpið stendur sig illa í að uppfylla skyldur sínar samkvæmt útvarpslögum en 9. gr. hljómar svona:

9. gr. Lýðræðislegar grundvallarreglur.
Útvarpsstöðvar skulu í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur. Þeim ber að virða tjáningarfrelsi og stuðla að því að fram komi í dagskrá rök fyrir mismunandi skoðunum í umdeildum málum. Þó skal útvarpsstöð, sem fengið hefur útvarpsleyfi í þeim yfirlýsta tilgangi að beita sér fyrir tilteknum málstað, vera óskylt að flytja dagskrárefni sem gengur í berhögg við stefnu stöðvarinnar.

Í þá gömlu góðu daga...Reyndar finnst mér Sjónvarpið eiga verulega bágt í þessari kosningabaráttu því að Borgarafundir í beinni útsendingu eru algjörlega misheppnaðir. Ekki er nóg með að leikmynd og umgjörð sé endurnýtt frá árinu 2007, heldur eru spurningar það einnig. Þess virðist vandlega gætt að ræða ekki mál eins og persónukjör, misjafnt atkvæðavægi, kjördæmaskipan, stjórnarskrárbreytingar, lýðræðisumbætur, þjóðaratkvæðagreiðslur, gagnsæi í stjórnsýslu, faglegar ráðningar og fleiri grundvallarmál sem Borgarahreyfingin er með á stefnuskrá sinni. Í stað þess hljóma sömu gömlu frasarnir: Hvað ætlið þið að skapa mörg störf? Ætlið þið að hækka skatta? Hvernig á að spara í heilbrigðiskerfinu? Frambjóðendurnir yfirbjóða hvern annan og lofa upp í báðar ermar eins og ekkert sé sjálfsagðara.

 

X-O fyrir þá sem trúa ekki bullinu.


mbl.is Gjaldfrjáls kynning hjá RÚV stóð ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Saari

Heyr heyr.

Því miður er það svo eftir að hafa bæði fylgst með og tekið þátt í kosningsjónvarpi RÚV að starfsfólk RÚV að stórum hluta, s.s. Ingólfur Bjarni hafi einfaldlega enga hugmynd um hvað felst í því að vera fréttmaður. Vanþekking á starfi blaða- og fréttmanna og vanhæfni stéttarinnar virðist vera landlæg hér á landi, en þó virðist vanþekkingin mest innan þeirra eigin starfsgreinar. Það er í raun oft á tíðum hreinlega ámátlegt að fylgjast með fjölmiðlaumfjöllun um kosningarnar að ekki sé minst á kosningasjónvarpið sjálft þar sem spyrlarnir virðast telja það vera megin hlutverk sitt að kalla fram gömlu innantómu kosningaloforðin enn eina ferðina. Hvort það er af vanhæfni, vanþekkingu eða einföldu áhugaleysi veit ég ekki en eitt er víst að það er ekki í anda upplýstrar umræðu og ekki í þágu almennings.

Bláskjár lifir því miður enn, nú í líki kamelljónsins og er orðinn blágrænn með dyggum stuðningi nýja menntamálaráðherrans.  

Þór Saari, 18.4.2009 kl. 10:02

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er dapurlegt að framboðin fái ekki að kynna sig sjálf út frá sínum eigin forsendum. Það er í raun stórfurðulegt að engin spurning í þessum svokölluðu borgarafundaútsendingum RÚV skuli hafa snúist um aðgerðir til handa heimlinunum eða því hvernig framboðin ætli að bregðast við háværustu kröfu mótmælendanna fyrr í vetur. Þ.e. lýðræðisumbótum og endurskipulagi á stjórnsýslunni!!! Ég spyr bara: Hvar var þetta fólk??? (þ.e. spyrlarnir) eða er það á launum við að spyrja ekki spurninga sem varða þá hluti sem stærstu þingflokkarnir hafa ekki á stefnuskrá sinni?!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 18.4.2009 kl. 21:47

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Sjallarnir hljóta að ráða því hvað spurt er um    Allir yfirmenn eru ráðnir í stjórnartíð sjallanna.  X-O

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.4.2009 kl. 02:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband