Áfellisdómur

Það er auðvitað áfellisdómur yfir kosningalögunum og flokkakerfinu á Íslandi að ÖSE hafi séð ástæðu til að hafa eftirlit með kosningunum hér. Flokkarnir á Alþingi settu sjálfir leikreglurnar og tóku eigin hagsmuni fram fyrir lýðræðislega almenningshagsmuni. Nefnum nokkur dæmi:

  • 5% þröskuldurinn gerir nýjum framboðum illmögulegt að ná mönnum inn á þing, einfaldlega vegna þess að hann er notaður sem áróðurstæki gegn þeim. Skoðanakannanir eru sjaldan nýjum framboðum mjög hjálplegar og stöðugt hamrað á að nýliðar eigi litla möguleika.
  • Starfandi flokkar á þingi mylja undir sig hundruði milljóna af almannafé, m.a. til að heyja kosningabaráttu sína á meðan að ný framboð fá ekki krónu til að kynna sín mál. Hvers vegna í ósköpunum fá stærri flokkar meiri ríkisstyrki en hinir minni?
  • Utankjörfundaratkvæðagreiðslur hefjast mörgum vikum áður en frestur til að skila framboðum er útrunninn. Þeir sem kjósa utankjörfundar snemma eru því augljóslega að kjósa gömlu flokkana.
  • Farið er inn á elliheimili með atkvæðaseðla og einnig deildir þar sem heilabilað fólk býr. Þetta fólk er látið kjósa og vitaskuld kýs það eins og það var vant.
  • Yfirkjörstjórnir eru skipaðar af Alþingi og þar sitja í mörgum tilfellum pólitískir varðhundar. Þeirra hlutverk er m.a. að gera nýjum framboðum erfitt fyrir eins og sannaðist fyrir nokkrum dögum þegar sumar kjörstjórnir settu fót fyrir nýju framboðin.
  • Kjördæmaskipan gerir nýjum framboðum einnig mjög erfitt fyrir. Til að eiga raunhæfa möguleika á árangri þarf að bjóða fram í öllum kjördæmum en landsbyggðarfólk er í eðli sínu tortryggið og erfitt að ná til þess þar sem fjarlægðir eru miklar.
  • Sitjandi stjórnmálamenn eru á fullum launum frá ríkinu í sinni kosningabaráttu, stundum með bíla frá ríkinu, á meðan að nýliðar þurfa að taka sér frí úr vinnu og útvega sér fé eftir öðrum leiðum.
  • Ríkisútvarpið mismunar nú framboðum með því að hafa engar kynningar á þeim líkt og tíðkast hefur í fyrri kosningum. Þetta veldur því að þeir sem fjármagnið hafa kynna sig með auglýsingum en hinir ekki. Í flestum ríkjum sem við berum okkur saman við eru auglýsingar frá stjórnmálaflokkum bannaðar síðustu vikurnar fyrir kosningar.

Þá er ótalið hreint og klárt svindl sem sögur fara af; kjörkassar sem tínast, minnihlutahópum boðin greiðsla fyrir atkvæðin, hótanir og fl. Sjaldnast er hægt að sanna neitt af þessu en orðrómurinn vekur vissulega upp grunsemdir.

 

Kjósum breytingar X-O.


mbl.is ÖSE í öllum kjördæmum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hrellir

Ég hélt því alls ekki fram að það ætti að taka kosningaréttinn af eldri borgurum. Hins vegar er fáránlegt að heilabilað fólk sé látið kjósa ef það hefur ekki rænu á að óska eftir því sjálft.

Ástæða þess að ÖSE er hér með eftirlit núna er sú að fólk frá þeim kom hér fyrir nokkrum vikum og kannaði málið. Niðurstaðan varð sú að ástæða væri til þess að fylgjast með kosningunum. Það eitt finnst mér áfellisdómur.

Sigurður Hrellir, 25.4.2009 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband