21.3.2009 | 01:31
Þjóðin á þing!
Hörður Torfason og Raddir fólksins fóru af stað strax í október með fundi og kröfur sem loksins var öllum fullnægt tæpum 5 mánuðum síðar. Það hlýtur að teljast góður árangur út af fyrir sig en því miður var listinn mun lengri en upphaflega var lagt upp með.
- Enn hefur enginn verið dreginn til ábyrðar fyrir að setja þjóðina á hausinn.
- Sú rannsókn á hruninu sem þjóðin getur sætt sig við er enn ekki hafin.
- Flokkakerfið sem ól af sér spillingu er enn í fullu fjöri og þeirra eigin leikreglur við lýði.
- Kvótakerfið sem að lokum leiddi til efnahagshamfaranna er enn á sínum stað.
- Almenningur er að taka á sig ómældar byrðar vegna fífldirfsku ómerkilegra braskara.
- Neyðarráðstafanir til bjargar heimilunum í landinu eru enn í mýflugumynd.
- Verðtryggingu og ónýtum gjaldmiðli hefur enn ekki verið rutt úr vegi.
- Alþingi er enn í herkví flokkakerfisins og þjóðin ekki komin á þing.
- Nýtt lýðveldi með nýrri stjórnarskrá hefur enn ekki litið dagsins ljós.
Hlé á fundum Radda fólksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:42 | Facebook
Athugasemdir
Skorinortur og flottur pistill!
Rakel Sigurgeirsdóttir, 21.3.2009 kl. 02:29
Takk fyrir það Rakel og sömuleiðis. Bestu kveðjur til ykkar norðan heiða.
Sigurður Hrellir, 21.3.2009 kl. 23:21
Meðteknar
Rakel Sigurgeirsdóttir, 21.3.2009 kl. 23:50
Tek undir orð Rakelar. Baráttuni er ekki lokið. Og takk fyrir bloggvináttuna.
Arinbjörn Kúld, 22.3.2009 kl. 01:12
Sömuleiðis Arinbjörn. Nú verðum við öll að spýta í lófana því að senn hefst hin raunverulega kosningabarátta. Sem betur fer bætast nýir frambjóðendur í hópinn á hverjum degi.
Sigurður Hrellir, 22.3.2009 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.