Hvorki Vinstri né Grænir

Ég ætla nú ekki að hafa mörg orð um skoðanir míns gamla félaga, Þráins Bertelssonar á nýjum vinum sínum í fjórflokknum. Þráinn sýndi kjósendum sínum fingurinn þegar hann gekk til liðs við "Hvorki Vinstri né Græna". Það kæmi mér því varla á óvart þótt hann byði villuráfandi félögum sínum í VG upp á svipaðar trakteringar.

ÍslandsbjörninnVG er orðið að skrípi sem skreytir sig með fölskum fjöðrum. Það geta engir róttækir vinstri menn eða raunverulegir umhverfissinnar með sjálfsvirðingu kosið þetta lygabandalag. Þó tók steininn úr þegar umhverfisráðherra lýsti þeirri skoðun sinni að villtir ísbirnir í friðlandi á Íslandi væru réttdræpir. Mikil er virðing þessa fólks fyrir villtri náttúru á norðurslóðum!


mbl.is Styður ekki Jón sem ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband