Það birtir upp um síðir

Það verður líklega ekkert áhlaupaverk hjá starfsmönnum ESA að setja sig inn í stöðu neytendalána á Íslandi. Flækjustigið er hátt og margir opinberir aðilar hafa blandað sér með einum eða öðrum hætti í framvindu málsins. Einnig má búast við því að embættismenn í Brussel trúi vart sínum eigin augum þegar þeir sjá hvernig íslensk stjórnsýsla fer með vald sitt og hvaða lánakjör eru í boði fyrir íslenskan almenning.

Kvörtunin til ESAÞað eitt að Eftirlitsstofnun EFTA tók sér ekki nema viku til að skoða eðli kvörtunarinnar og fallast á að hefja rannsókn, hlýtur að gefa ástæðu til aukinnar bjartsýni hjá þeim mikla fjölda fólks sem virðist forsmáð af fjármálafyrirtækjum, stjórnvöldum og opinberum stofnunum hér á landi.

Svarbréf ESA má kynna sér hér.


mbl.is ESA svarar hagsmunasamtökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurður, þetta eru góðar fréttir. Ég er spenntastur fyrir að sjá viðbrögð íslenskra stjórnvalda. Hvernig ætli þau verði? þar á bænum kemur manni ekki neitt á óvart lengur.

Hákon Hrafn (IP-tala skráð) 5.5.2011 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband