Hjá flestum íslenskum fjölmiðlum er enn árið 2007

Fréttamaðurinn Kristinn Hrafnsson sést á þessum myndum, enda starfar hann með Wikileaks í þessari mestu uppljóstrun sögunnar, allavega hvað varðar upplýsingamagn. Yfirmenn RÚV kærðu sig ekki um að hafa Kristin áfram í starfi þrátt fyrir alla hans miklu reynslu og hæfileika. Reyndar kærðu þeir sig heldur ekki um að vera á meðal örfárra fjölmiðla á heimsvísu sem fengu séraðgang að skjölum Wikileaks í sumar. Segir það ekki sína sögu um stöðu þessara mála á Íslandi?

Á hverjum degi dynja upplýsingar á íslenskum almenningi sem settar eru fram gagnrýnislaust og varla gerð tilraun til að kanna hvort viðmælendur fari frjálslega með staðreyndir. Ráðherrar fá ekki einu sinni erfiðar spurningar þegar þeir tafsa og fara með staðlausa stafi. Viðmælendur fréttamanna eru oftar en ekki í launuðu starfi sem fjölmiðlafulltrúar fyrirtækja og sérhagsmunafélaga. Lærðu menn virkilega enga lexíu af greiningardeildum bankanna sálugu?

Fréttin hér segir að Julian Assange óttist leyniþjónustur. Hvað skyldu íslenskir fjölmiðlamenn helst óttast? Að vera sagt upp störfum ef þeir eru of gagnrýnir?


mbl.is Assange óttast leyniþjónustur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Sigurður, jafnan !

Hefi engu; við þína góðu grein að bæta - gæti verið; 23. Október 2006, eða þá 2007, í dag, þeirra hluta vegna.

Með beztu kveðjum /

Óskar Helgi 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.10.2010 kl. 19:58

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Tek undir pistil þinn..

hilmar jónsson, 23.10.2010 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband