Tilmæli

Ég var rétt í þessu að senda eftirfarandi tilmæli til fulltrúa Bláskógabyggðar <hkh@blaskogabyggd.is> og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands <hs@sudurland.is>:

 

Góðan dag.

Ég er eigandi sumarbústaðar í landi Heiðarbæjar og greiði fyrir þjónustu vegna tæmingar á rotþró. Hafandi fylgst með fréttum af framferði Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands ehf vil ég koma á framfæri þeirri skoðun minni að ykkur beri umsvifalaust að svipta þetta fyrirtæki og/eða eiganda þess starfsleyfi.

Í öllu falli get ég alls ekki sætt mig við ef þessi þjónusta verður áfram keypt af sömu aðilum.

Vinsamlegast staðfestið að tilmæli mín verði tekin til umfjöllunar.

Með kveðju,


 


mbl.is „Það er skítalykt af þessu frá a til ö“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon


Flott bréf.  Ég persónulega efast um að ég geti nokkru sinni drukkið aftur vatnið úr krananum í bústaðnum hjá tengdó.  Og það var sko besta vatn í heimi.

Það á að svipta þetta fyrirtæki starfsleyfi strax og aðstandendur þess eiga aldrei aftur að fá leyfi til að stunda samskonar rekstur.  Það er ekki eins og þetta sé í fyrsta skipti sem þetta gerist hjá þeim, en þó alltaf fyrir slysni.

Inga Ragna (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband