3.8.2010 | 12:32
Skuldanesbær
Böðvar Jónsson heitir formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar og einn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í sveitastjórninni. Í gær tjáði hann sig um Magma málið í viðtali við Stöð 2 og sagði m.a. orðrétt:
"Ef að ríkið ætlar að grípa inn í þessi viðskipti, fullkomlega eðlilegu viðskipti sem fara fram með, með, samkvæmt íslenskum lögum og leikreglum, að þá mun auðvitað Reykjanesbær kanna rétt sinn gagnvart ríkinu og slíkum inngripum."
Reykjanesbær rambar á barmi gjaldþrots og er á meðal 10 sveitarfélaga á gjörgæsludeild eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga. Halli hefur verið af almennri starfsemi sveitarfélagsins hvert einasta ár síðan 2002. Flestar verðmætar eignir hafa verið seldar á þessum árum, s.s. skólar, menningar- og íþróttamannvirki, til þess að fjármagna halla af reglubundnum rekstri bæjarsjóðsins.
Ummæli Böðvars dæma sig sjálf og líklega sér hann heldur ekkert athugavert við þetta. Kjósendur í vor virðast hins vegar ekki hafa haft fyrir að kynna sér átakanlega frammistöðu meirihlutans í sveitarstjórninni og Árna Sigfússonar, bæjarstjóra. Íbúar sveitarfélagsins sitja því eignalitlir uppi með menn eins og Böðvar og Árna, auk skulda upp á 30 milljarða og ábyrgðar upp á 9,5 milljarða sem þeir seint verða borgunarmenn fyrir. Meira en helmingur kjósenda tóku böðlunum fagnandi þegar þeir buðust til að klára verkið.
Björk: Magma vinnur með AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:55 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.