13.4.2010 | 09:41
Sýndarveruleiki
Á leiðinni heim úr bókabúð í gær mætti ég kunningja mínum á götu. Hann spurði hvað væri títt og ég sýndi honum ofan í pokann með skýrslunni ógurlegu. "Þú ert þó ekki að fara að lesa þetta," sagði hann undrandi, "það vita allir að bankarnir voru ábyrgir!". Ég maldaði í móinn og sagði að stjórnmálamenn væru augljóslega ekki undanskildir. "En bankamennirnir lugu að þeim!" sagði kunningi minn og virtist óhaggandi í skoðun sinni. Að vísu féllst hann á það að "sínir menn", Geir og Árni Matt. hefðu verið óttalegar gungur.
Hafandi séð stóra fyrirsögn Moggans í dag fer ég að óttast að skýrslan muni ekki vera á náttborðunum í Valhöll.
Hönd með gullúri kippti honum út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:55 | Facebook
Athugasemdir
Ekki benda á mig syngja menn og keppast við að benda á aðra. Og á meðan þeir komast upp með það er lítil vonum betra líf á Íslandi.
Bjarki Hilmarsson (IP-tala skráð) 14.4.2010 kl. 18:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.