Sjálfsprottið stjórnlagaþing?

Össur Skarphéðinsson fær prik hjá mér fyrir að svara skýrt og skorinort ummælum sænska fjármálaráðherrans. Af því tilefni er honum hér með boðið á mjög áhugaverðan fund sem haldinn verður í kvöld:

 

Sjálfsprottið  stjórnlagaþing

 

-Nýr samfélagssáttmáli-

 

Fimmtudaginn 11.mars kl. 20 verður blásið til opins fundar um stjórnlagaþing í Húsinu að Höfðatúni 12 í Reykjavík.

Frummælendur verða:

    Aðalheiður Ámundadóttir, meistaranemi í lögfræði við Háskólann á Akureyri. – Frumvarp forsætisráðherra um ráðgefandi stjórnlagaþing: Umfjöllun og gagnrýni.

    Geir Guðmundsson, verkfræðingur og verkefnisstjóri. – „Hugleiðingar áhugamanns um sjálfsprottið stjórnlagaþing allra landsmanna“.

    Dr. Elvira Mendez Pinedo, dósent í Evrópurétti við Háskóla Íslands. – Frelsi, jafnrétti og bræðralag. - „Geta Íslendingar lært af Evrópusögunni?“

    Dr. Matej Accetto, prófessor við University of Ljubljana. – A new Constitution for a new country. – „What can we learn from the Slovenian constitutional process?“

Eftirtaldir aðilar verða í pallborði auk frummælenda:

    Hörður Torfason, tónlistarmaður.

    Hjörtur Hjartarson,  áhugamaður um stjórnlagaþing.

Fundarstjóri verður Gunnar Sigurðsson.

Allir velkomnir !

Húsið, Höfðatúni 12

 


mbl.is Gagnrýnir harðlega sænskan ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband