30.12.2009 | 23:37
Alþingi yfir móðuna miklu
Róbert Marskálkur sem sjaldan opnar munninn án þess að ergja mig í leiðinni hitti aldrei þessu vant naglann á höfuðið í stuttri greinargerð sinni fyrir stundu. Hann sagði að samþykkt Icesave-ábyrgðarinnar væri upphafið að einhverju nýju og ég held að það sé hreint ekki orðum aukið. Alþingi hefur grafið sér gröf í þeirri mynd sem við þekkjum það og varla nokkur sála sem trúir að eitthvað skynsamlegt komi úr þeirri átt.
Nú þarf almenningur að sýna og sanna að valdið kemur frá fólkinu. Mætum öll fyrir utan Bessastaði á morgun og krefjumst þess að forsetinn synji þessum ólögum staðfestingar. Á nýju ári krefjumst við nýrrar stjórnarskrár án nokkurrar aðkomu stjórnmálaflokka eða misheppnaðra stjórnmálamanna. Þá fyrst verður hægt að tala um nýtt upphaf.
Alþingi R.I.P.
![]() |
Alþingi samþykkti Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.12.2009 kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.12.2009 | 00:53
Sprungin pera
Ég á varla orð. Ráðherra sem var ráðherra í Þingvallastjórninni kannast ekki við kynningu á stöðu Icesave samninganna sem unnin var sérstaklega fyrir hann af rándýrri breskri lögfræðistofu. Það er greinilega sprungin pera þarna einhvers staðar og líklega ekki lesbjart. Sá hann nokkuð reikninginn fyrir kynninguna heldur?
Það er útlit fyrir að Landsdómur hafi í nógu að snúast á næstu árum ef svo fer sem horfir.
![]() |
Steingrímur segist trúa Össuri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)