Fráleit ummæli

Miðað við málflutning ráðherrans lengst af var hann alveg sáttur við að dómstólar hefðu úrskurðarvald í þessi mikla deilumáli sem varðar tugþúsundir einstaklinga. Nú kveður við annan tón og ljóst að ríkisstjórnin var ekki viðbúin þessari niðurstöðu, svo ótrúlegt sem það kann að virðast.

Gylfi Magnússon er hluti af framkvæmdavaldinu sem hefur verið legið á hálsi að valta yfir löggjafarvaldið. Nú hikar hann ekki við að leggja dómsvaldinu línurnar með svo ótvíræðum skilaboðum og gerir í leiðinni lítið úr áliti margra valinkunnra lögspekinga. Það er fullkomlega óeðlilegt og því ætti Gylfi að víkja úr sæti sínu sem fyrst.


mbl.is Fjarstæðukennd niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Borgþórsson

Gæti ekki verið meira sammála !

Baldur Borgþórsson, 25.6.2010 kl. 18:47

2 identicon

Hæ Siggi

 nennirðu að hfa samband við okkur Ólaf  - út af mynd Ullu : ) minn sími er 8200 575

 hlakka til að heyra frá þér

Guðrún Péturs (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 22:59

3 Smámynd: Sigurjón

Sæll Siggi.

Þetta eru fáránleg ummæli viðkomandi ráðherra sem endranær.  Maðurinn er fífl og fáviti og þar við situr.  Hann er sagður óflokksbundinn, en hann er samt forkólfur í samspillingunni.

Kv. SV

Sigurjón, 26.6.2010 kl. 03:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband