Sólin svört

Mr. Black Sunshine?Það er mikið gleðiefni að Magnús  þessi Guðmundsson skuli ekki fá að ganga laus mikið lengur. Sölvi Tryggvason skrifaði um Magnús hér og kallaði hann "Hrokagikk sem fékk milljón Evrur".

Það er auðvitað enn eitt rannsóknarefnið hvernig í ósköpunum stóð á því að Kaupthing í Luxembourg var selt í hendur þeirra sem settu hér allt á hausinn. Þar var miðja svikamyllunnar og þar voru öll leyndarmálin geymd. Magnús Guðmundsson var þar forstjóri fyrir Hrunið og Magnús Guðmunsson er þar enn forstjóri þrátt fyrir nýtt nafn og að "nýir eigendur" hafi tekið við! Vá!

Lesið endilega þessa frétt og svo þessa sem gefa fólki hugmynd um það hvernig rauveruleikinn er hjá Magnúsi og "vinum" hans. Bókhaldsbrellur voru þeirra ær og kýr og sólin svört.


mbl.is Skýrslutökum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Vonandi fær hann hámarksdóm, fyrir hvert einasta brot sem framið var, svo að í heildina verði það fangelsi fyrir lífstíð.

Tómas Waagfjörð, 6.5.2010 kl. 22:52

2 Smámynd: Elínborg

Já loksins er farið að rofa til sýnist manni. Sorinn er svo alger,að mann skortir enn og aftur orð yfir hann. Mætti ræða mun meira um siðblinduna, koma með nánari lýsingar svo fólk geti framvegis þekkt einkennin betur...

Elínborg, 7.5.2010 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband