Ríkisútrásarvarpið

Kastljósið var ágætt í upphafi en síðan eru liðin mörg ár. Nú orðið á það meira skylt við Stundina okkar...

Á sínum tíma var Þórhallur Gunnarsson ráðinn sem ritstjóri Kastljóssins án þess að staðan væri auglýst. Flestir ef ekki allir umsjónarmenn Kastljóss voru einnig ráðnir án auglýsingar. Nokkrum mánuðum síðar var Þórhallur ráðinn sem yfirmaður innlendrar dagskrárgerðar án þess að sú staða væri auglýst. Þar hefur hann nánast því einræðisvald um það hvernig opinbert fé er nýtt til dagskrárgerðar, það er ekki einu sinni nefnd honum til ráðgjafar.

Fundur hjá útrásarráðiHvernig væri annars að RÚV færi að auglýsa stöður umsjónarmanna, deildarstjóra og millistjórnenda, bara svona til tilbreytingar? Auðvitað eiga sömu reglur að gilda um RÚV og annan opinberan rekstur. Alls staðar lifir klíkusamfélagið góðu lífi.


mbl.is Kastljós kostar 130 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er ferill Þórhalls Gunnarssonar?

Jón (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 02:09

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Fæ alltaf gæsahúð þegar ég sé þennan Þórhall.

Ragnar Gunnlaugsson, 23.12.2009 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband