Fangar í eigin landi?

Þegar ég horfði á þetta myndskeið um "fangana" í Kringlunni tók ég eftir því að Þóra Kristín Ásgeirsdóttir var ekki höfundur fréttarinnar og þulur. Hún hefur staðið sig með afburðum vel og haldið uppi tiltrú minni á því að Mogginn og mbl.is sé ekki áróðursmálgagn nema rétt í aðdraganda kosninga.

Á öðrum stað og stundMér finnst það fréttnæmt að formanni Blaðamannafélags Íslands sé sagt upp störfum þó svo að ritstjóra mbl.is (hver sem það er) finnist það ekki, sjá hér. Einnig að öðrum frábærum blaðamönnum sé sagt upp af pólitískum ástæðum, sjá hér. Nú má líklegast enginn sem aðhyllist ESB vinna þar lengur.

Það þarf að ríkja viss trúnaður milli fjölmiðlafólks og almennings svo að mark sé takandi á miðlinum. Frétt um tilgangslaust uppátæki í Kringlunni skiptir litlu máli en vissulega væri hægt að ímynda sér dýpri túlkun án mikils ímyndunarafls.

Það sem nú á sér stað á elsta fjölmiðli landsins kallast pólitískar hreinsanir og ég held að Franco hefði varla gert þetta öðruvísi miðað við stað og stund.


mbl.is Fangar í verslunarmiðstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef yfirgefið þennan vettvang; sjaldan hefur mér, að mínu viti, verið sýndur eins stór fingur og núna. Og það að segja að Davíð komi ekki nærri fréttum af hruninu, er eins og að vera skeindur með sandpappír. Hver sem hefur fylgst eitthvað með Davíð síðustu áratugina, veit alveg hvaða stjórnunarstíl hann hefur. Að halda öðru fram, er ekkert annað en eitruð lygi.

Skorrdal (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 03:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband