21.2.2009 | 23:33
Hver er fremstur?
Það er nokkuð skondið að "FREMSTI FRÉTTASKÝRINGAVEFUR LANDSINS", hvorki meira né minna, skuli ekki minnast einu orði á þessa upphefð Þóru Kristínar. Einhverra hluta vegna virðist Óli Björn, ritstjóri AMX ekki sjá ástæðu til að minnast á það þegar kollegi hans fær viðurkenningu fyrir "vandaðar fréttir á mbl.is þar sem hún nálgaðist frumlega málefni líðandi stundar og netmiðillinn var nýttur með nýjum hætti í íslenskri fjölmiðlun."
Í ljósi þess hve umræddur fréttaskýringavefur er afskaplega hliðhollur Sjálfstæðisflokknum er nokkuð sérstakt að Óli Björn Kárason skuli hafa sagt þeim til syndanna skömmu fyrir bankahrunið. Sú gagnrýni er nú á bak og burt.
Til hamingju Þóra Kristín og haltu áfram á sömu braut.
Þóra Kristín blaðamaður ársins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:47 | Facebook
Athugasemdir
Það hentar ekki AMX að fréttaflutningur sé af raunsönnu ástandi mála. Þeir vita sem er, að ef fjölmiðlum er stýrt og þeirra völdu upplýsingu komið á framfæri við almenning, þá getur fólk ekki myndað breiða samstöðu um hagsmunamál sín.
Margrét Sigurðardóttir, 22.2.2009 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.