Ástæða til tortryggni

Það liggur við að maður vorkenni henni Þorgerði að tapa sparnaði þeirra hjóna. Hún er eflaust vonsvikin og segist ekki vilja líða fyrir tortryggnina í samfélaginu. 

R.I.P.Hins vegar er stóra málið að allt of mikil bein tengsl hafa verið á milli stjórnmálaflokkanna og bankanna. Einkavæðing þeirra var svívirða og gerð með sérhagsmuni að leiðarljósi en ekki þjóðarhagsmuni. Þjóðin situr hins vegar uppi með þrotabúið og vill væntanlega ekki líða fyrir það meira en orðið er. Þess vegna er ekki hægt að samþykkja að sama fólkið eða tengdir aðilar hafi hönd í bagga með rannsókn og enduruppbyggingu. Að öðrum kosti verður aldrei nein sátt í þjóðfélaginu og afleiðingarnar langvarandi eftir því.

Þorgerður hefur sýnt töluverða leiðtogahæfileika og á eflaust afturkvæmt í stjórnmálin ef hún kærir sig um. Hins vegar verður ríkisstjórnin að sleppa takinu og koma verður á þjóðstjórn þangað til unnt er að kjósa á ný. Það gerir bara illt verra að þrjóskast við.

Svo má ég til með að vara við nýjum lögum um meðferð sakamála sem taka gildi 1. jan. 2009. Þar segir m.a. í 90. grein:

"Nú verður uppþot eða fjölmennar óeirðir brjótast út sem hafa haft eða gætu haft í för með sér líkamsmeiðingar eða stórfelld eignaspjöll og ekki verður með vissu bent á hinn seka eða hina seku og er þá lögreglu heimilt að handtaka hvern þann sem nærstaddur er og ástæða er til að gruna um refsiverða háttsemi."

Við skulum ekki gleyma hvaða dómarar eiga að dæma mótmælendur ef allt fer úr böndunum.


mbl.is Óþolandi að líða fyrir tortryggni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband