8.2.2008 | 12:01
Stóriðjusinnaðir umhverfissinnar?
Það er óskemmtilegt að sjá fulltrúa VG í bæjarráði Akureyrar ekki taka harða afstöðu gegn álveri á Bakka, sjá fundargerð. Þýðir það að Baldvin H. Sigurðsson sé meira Vinstri en Grænn eða er hann einfaldlega að reyna að geðjast öllum? Minna á óvart kemur að fulltrúi Samfylkingarinnar, Hermann Jón Tómasson skuli styðja álversframkvæmdirnar. Samfylkingin studdi rækilega byggingu Kárahnjúkavirkjunar og álver í Reyðarfirði og er enn við sama heygarðshornið þrátt fyrir fagurgala í umhverfismálum fyrir síðustu Alþingiskosningar.
Vilja álver á Bakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er það ekki ágætt framlag til umhverfisverndar að reisa álver á Bakka? Ekki verður það gert annarsstaðar með minni umhverfisáhrifum.
Tryggvi L. Skjaldarson, 8.2.2008 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.