16.10.2007 | 01:04
R.I.P.
Yfirleitt hlakkar í mér þegar allt fer í klúður hjá Sjöllunum. Í þetta sinn hef ég samúð með góða gamla Villa sem marar nú í hálfu kafi og enginn virðist ætla að bjarga frá drukknun. Vonandi tekur hann Binga með sér í leiðinni.
Nú verður heldur ekki hjá því komist að skoða aðra stóra samninga sem líklega hafa verið undirritaðir af borgarstjóranum fyrrverandi án yfirlestrar. Mætti t.d. benda á byggingarfyrirtækið Eykt í því sambandi sem er að ganga af göflunum á horni Borgartúns og Höfðatúns við lítinn fögnuð borgarbúa í nærliggjandi hverfum.
Minnist þess ekki að hafa séð minnisblaðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:08 | Facebook
Athugasemdir
Jamm, Ræfils Villi...þetta er orðið brjóstumkennanlegt og maður trúir handvömm og gleymsku frekar en spillingu og einbeittum brotavilja. Saga hans sem borgarstjóra er orðin ótrúlegur hrakfallabálkur á ekki lengri tíma. Ég hefði haldið að men í svo háum embættum hefðu fólk til að horfa yfir öxlina á sér í mikilvægum og stórum ákvörðunum... Lögfræðinga og aðra ráðgjafa..´? Er stjórnsýslan virkilega svona frumstæð að einn maður með borderline alsheimer geti valsað um og gert gloríur hægri vinstri?
Jón Steinar Ragnarsson, 16.10.2007 kl. 02:58
Ég hef alltaf tekið skammstöfuninni R.I.P. sem: Ridiculously important person. Er meitthvað svo viðeigandi fyrir brölt manna.
Jón Steinar Ragnarsson, 16.10.2007 kl. 03:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.