Laus staða fyrir Steingrím?

Það er gömul saga og ný að vald spillir og að algjört vald spillir algjörlega. Hverju skyldi Strauss-Kahn hafa tekið upp á í embætti forseta Frakklands?

Án þess að hægt sé á þessari stundu að fullyrða neitt til um sekt eða sakleysi þessa framagosa er þó ljóst að það væri ekki í fyrsta sinn að hann léti stjórnast af frumstæðum hvötum fremur en yfirvegun og skynsemi. Eins og fram kemur í annarri frétt þurfti hann fyrir 3 árum að biðjast afsökunar á að hafa misnotað konu kynferðislega sem var undir hann sett hjá AGS.

Næsti framkvæmdastjóri AGS?Hvað okkur Íslendinga varðar ættum við að gefnu tilefni að enda samstarfið við AGS, enda ljóst að niðurskurður í heilbrigðis- og menntakerfi er samkvæmt fyrirmælum sjóðsins. Helsti aðdáandi AGS hér á landi ætti einnig að íhuga að sækja um stöðu Strauss-Kahn enda búinn að berjast við slökkvistarf lengur en honum og okkur öllum er hollt.

Reyndar tel ég ólíklegt að Strauss-Kahn fái dóm fyrir að ráðast að fátækri ræstingarkonu. BNA er ekki réttarríki eins og aftaka Bin-Laden án dóms og laga, Guantanamo og meðferð Bradley Mannings hafa sýnt og sannað.


mbl.is Færður fyrir dómara í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Brilljant hugmynd, vægt til orða tekið. Þvílík landhreinsun ef af yrði og þá kynntist heimsbyggðin manni sem kann að nautna á lítilmagnanum, sem er aðalmerki AGS.

Aðalbjörn Steingrímsson (IP-tala skráð) 15.5.2011 kl. 10:30

2 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Hrellir, hvað hefur heimsbyggðin unnið til saka sem réttlætir þessa hugmynd þína?

Gunnar Skúli Ármannsson, 15.5.2011 kl. 13:40

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já ég get alveg séð Steingrím fyrir mér sveittan við að bjarga heimsbyggðinni úr efnahagsþrenginum. Efa ekki að hann haf viljann, þekkinguna og hæfnina til þess . Gunnar Skúli þú veist að það skiptir engu máli hvernig almúginn hefur það. Aðalatriðið er að Steingrímur fái að sanna sig sem töffari. Þú þarft að koma forgangsröðuninni á hreint

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 15.5.2011 kl. 14:19

4 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

takk Jakobína..

Gunnar Skúli Ármannsson, 15.5.2011 kl. 20:27

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Við þurfum ekki bara að hætta í AGS-prógramminu heldur þurfum við að segja okkur úr sjóðnum til að koma megi á nauðsynlegum umbótum.

Guðmundur Ásgeirsson, 20.5.2011 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband