6.11.2010 | 18:51
Nú verður ekki aftur snúið
Þjóðfundurinn er glæsileg byrjun á endurreisn lýðveldisins. Marktækt úrtak þjóðarinnar virðist ekki hafa látið það vefjast fyrir sér að forgangsraða því sem máli skiptir á 21. öldinni. Stjórnlagaþingið þarf ekki að vera í vafa um það hvar áherslurnar liggja.
Ótal úrtöluraddir munu eflaust hljóma á næstu dögum og vikum til að gera lítið úr niðurstöðum þjóðfundarins. Látum þær ekki rugla okkur í ríminu. Allt of stór hópur fólks byggir afkomu sína á óbreyttu ástandi, þ.e.a.s. misrétti, misskiptingu og ýmsum sérhagsmunum.
Næst á dagskrá er að kjósa verðuga fulltrúa á stjórnlagaþingið. Varast ber að kasta til þess höndum og velja kunnugleg andlit án þess að kynna sér vel hvað býr að baki. Dagurinn í dag sýnir að "venjulegu fólki" er vel treystandi.
Grunngildin skýrð á þjóðfundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:28 | Facebook
Athugasemdir
hefur þú verið inni á þessu þingi og séð hverjir ráða við borðin. Hefur þú eitthvað sem við hin höfum ekki? láttu sjá!
Eyjólfur Jónsson, 6.11.2010 kl. 19:26
Skoðum málið!
Sigurður Haraldsson, 6.11.2010 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.