Vanhæft Alþingi

Það stendur illilega í forystumönnum stjórnmálaflokkanna að taka mótmæli síðustu daga til sín. Það er augljóslega verið að mótmæla ríkisstjórninni og gagnslausum úrræðum hennar til að bjarga skuldugum heimilum.

Það er líka verið að mótmæla forystumönnum gömlu flokkanna í stjórnarandstöðu sem báðir eru synir auðmanna sem nýtt hafa pólitísk sambönd sín til að hagnast gífurlega. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins er gift forstjóra Alcoa og fyrrverandi varaformaður fékk niðurfellda marga milljarða skuld. Engir nema sannir flokksdindlar vilja sjá þetta fólk nálægt stjórnkerfinu.

Svo er klárlega verið að mótmæla afturgöngum úr hrunstjórninni sem sá ekki einu sinni sóma sinn í að sitja hjá í atkvæðagreiðslu um ráðherraábyrgð. Með því framferði hélt það hlífiskyldi yfir 3 fyrrverandi félögum sínum og brugðu sér í hlutverk dómara.

Síðast en ekki síst er verið að mótmæla framferði bankanna sem eru eins og ríki í ríkinu og höggva menn í spað meðan að sérstakir vildarvinir og innvígðir fá að velja sér eignir og fyrirtæki af matseðli.

Ég spái því að tíðinda verði að vænta strax í þessari viku. Það er mjög mikil ókyrrð í fólki og stuttur kveikiþráður í mörgum. Það væri verulega leitt ef það þyrfti raunverulega að koma til blóðsúthellinga á Íslandi til að bæta ástandið.


mbl.is Vilja ekki breyta um stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það ljóður að hafa átt föður sem var sjálfbjarga ?? !

 Er það ljóður, að vera gift ungum, dugmiklum, heiðarlegum, vel menntuðum manni , sem treyst hefur verið fyrir rekstri eins stærsta fyrirtækis þessa lands. Fyrirtæki sem gefur hundruðum fjölskylda gott lífsviðurværi ??

 Ef slíkt er ljóður, þá er ekki að undra að jafn illa sé komið fyrir íslenskri þjóð, sem raun ber vitni ! 

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband