12.2.2010 | 12:23
Gott hjartalag?
Ég óska Degi Kára til hamingju með að myndin kemur loksins fyrir sjónir almennings hér á Íslandi. Tökur á henni stóðu yfir vorið 2008, lengst af í frábærri leikmynd sem sett var upp í skemmu í Vesturbænum.
Margir þeirra sem störfuðu við myndina hafa beðið frumsýningarinnar lengi, m.a. vegna þess að einhverjar eftirstöðvar voru eftir á greiðslum til fólks fyrir upptökurnar. Annar framleiðandinn, Þórir Snær Sigurjónsson hringdi reyndar í mig rétt í þessu og lofaði að ganga frá öllum lausum endum fyrir frumsýningardag í sátt við það fagfólk sem að málinu kom. Það eru góðar fréttir en ég ítreka að hann verður að standa við gefin heit.
Vonandi verður frumsýning myndarinnar eins hátíðleg og tilefni er til. Hún á það eflaust skilið.
Stikla úr The Good Heart frumsýnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:14 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.