10.2.2010 | 15:15
Óumdeild ?!?
"Það er full samstaða um Búðarhálsvirkjun" sagði Katrín Júlíusdóttir og þar af leiðir að VG styðja líklega þessa framkvæmd.
Ég skora á talsmenn flokks sem kallar sig "Grænt framboð" að lýsa því yfir opinberlega að þeir styðji framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun að því gefnu að orkan fari í álbræðslu eða aðra mengandi stóriðju. Ef svo er þá tel ég að umhverfissinnað fólk þurfi að finna sér aðra fulltrúa og trúverðugri.
"Alcan er starfandi fyrirtæki hér á landi" sagði Katrín og vill efla það með aukinni álbræðslu. Ekki er langt síðan rúmur helmingur kjósenda felldi áform um stækkun álversins í Straumsvík en nú á víst að kjósa aftur og síðan enn aftur ef ekki fæst samþykki fyrir því. Um hvað á annars að kjósa, stækkun álversins eða deiliskipulag? Framkoma Samfylkingarfólks í Hafnarfirði er ekki til eftirbreytni.
Annars vísa ég til fyrri pistla minna um sömu virkjun og tilvistarkreppu VG.
Virkjunin gangsett 2013 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.