Tvær þjóðir innan ESB tala nú okkar máli

Fáni LitháenNú hefur Litháen tekið undir málstað Íslands ásamt Lettlandi og þannig hafa tvö ríki innan ESB sýnt mikið hugrekki. Við Íslendingar skulum festa það vel í minni hverjir eru vinir í raun og ekki láta nokkra ólánssama glæpamenn sem hingað hafa komið villa okkur sýn.
 
Það eru vissulega töluverð vonbrigði að sjá dræmar undirtektir meðal Norðurlandaþjóðanna en Noregur virðist þó ætla að tala máli okkar. Það er svo undir sjálfum okkur komið hvort við berum gæfu til að ganga samtaka í það að ná sáttum við Breta og Hollendinga með aðkomu sáttasemjara og fulltrúa ESB eða hvort við ætlum að kljúfa hvort annað í herðar niður á heimavelli og sýna umheiminum að við séum í raun sundurlaus hjörð.
 
Ég hvet alla sem þetta lesa til að fylgjast með Silfri Egils á morgun en þar munu heyrast mjög athyglisverð sjónarmið alvöru þungavigtarfólks sem merkilegt nokk talar máli Íslendinga af meiri sannfæringu en margur stjórnmálamaðurinn sem til þess var kosinn. Einnig virðast sumir erlendir fræðimenn sjá þetta Icesave-mál í sínu stóra samhengi en flestir Íslendingar virðast ekki sjá skóginn fyrir trjánum.

mbl.is Bjarni: Eigum aðra kosti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Blöndal

Vestmannaeyjar myndu eflaust tala okkar máli ef þær væri í ESB

Páll Blöndal, 9.1.2010 kl. 12:14

2 Smámynd: Páll Blöndal

Því fleiri ESB ríki sem tala okkar máli, því betra fyrir umsóknarferli okkar að ESB.
Þannig að ESB-sinnum hugnast sá stuðningur vel.
Ef við náum betir Icesave samningi þá er það hið besta mál.
 

Páll Blöndal, 9.1.2010 kl. 12:52

3 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Gleðilegt ár, hlakka til að horfa á Silfur Egils á morgun..!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 9.1.2010 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband