22.2.2011 | 22:21
Dagur #2
Tveir hæstaréttarlögmenn ræddu stöðuna í Icesave-málinu í Kastljósi kvöldsins. Þeir voru á öndverðum meiði um það hvort skárra væri að samþykkja samninginn eða hafna honum.
Ég man ekki betur en að bæði Hollendingar og Bretar hafi á sínum tíma hafnað því að láta dómstóla útkljá þetta deilumál og völdu þess í stað að beita pólitískum þrýstingi með aðstoð annarra ríkja og sömuleiðis innan stjórnar AGS.
Þó svo að lagatæknileg álitaefni geti vissulega verið áhugaverð hlýtur spurningin samt að vera hvort að þetta mál rati nokkurn tíma fyrir dómstóla. Ekki er víst að allir deiluaðilar kæmust að sameiginlegri niðurstöðu um það hvaða dómstól sé treystandi, og reyndar er ekki heldur víst að sumir deiluaðilar kæri sig yfirleitt um að eiga á hættu að fá dóm sem sett gæti allt innistæðutryggingakerfið í uppnám.
En áður en íslenskir kjósendur sökkva sér um of í lagatæknileg álitaefni Icesave, væri ekki úr vegi að skilanefnd Landsbankans upplýsti fólk um það hvert innistæður rúmlega 300 þúsund Breta og um 125 þúsund Hollendinga runnu. Einnig væri fróðlegt að heyra af aðgerðum stjórnvalda til að láta stærstu eigendur og stjórnendur gamla Landsbankans bera ábyrgð á svo stórkostlegu svindli.
Ég man ekki betur en að bæði Hollendingar og Bretar hafi á sínum tíma hafnað því að láta dómstóla útkljá þetta deilumál og völdu þess í stað að beita pólitískum þrýstingi með aðstoð annarra ríkja og sömuleiðis innan stjórnar AGS.
Þó svo að lagatæknileg álitaefni geti vissulega verið áhugaverð hlýtur spurningin samt að vera hvort að þetta mál rati nokkurn tíma fyrir dómstóla. Ekki er víst að allir deiluaðilar kæmust að sameiginlegri niðurstöðu um það hvaða dómstól sé treystandi, og reyndar er ekki heldur víst að sumir deiluaðilar kæri sig yfirleitt um að eiga á hættu að fá dóm sem sett gæti allt innistæðutryggingakerfið í uppnám.

![]() |
Óviðunandi ábyrgðarleysi forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)