16.2.2010 | 15:42
Að ræna banka innanfrá - taka 2
Ég held að þeim sem gáfu beygluðu pottana sína á Þjóðminjasafnið eftir mótmælin í fyrravetur væri nær að fá þá lánaða aftur. Við hin sem trúðum því ekki að Búsáhaldabyltingunni væri lokið þurfum einungis að teygja okkur upp í skáp. Mætum öll á baráttufund n.k. laugardag, Austurvöllur kl. 15.
Látum ekki bankamenn og fjárglæframenn ræna okkur aleigunni í annað sinn!
![]() |
Læti við Kirkjusand |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.2.2010 | 10:54
Lattelepjandi lopatreflar
Skyldu margir íslenskir kvikmyndagerðarmenn vera farnir eða á förum? Hér stefnir allt í öfuga átt, þökk sé sameiginlegu átaki ríkisstjórnarinnar og RÚV. Það sorglega er að íslensk kvikmyndagerð er arðbær fyrir ríkissjóð en ekki fyrir einkaaðila eina og sér. Þetta skilur ekki svokölluð "Skjaldborgarstjórn" sem gengur með þær ranghugmyndir að hún sé vinstri stjórn og sé að standa vörð um hagsmuni almennings á Íslandi.
Sjá einnig þetta óborganlega skot á RÚV.
![]() |
Mestu búferlaflutningar Íslandssögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2010 | 07:47
Eitthvað fyrir RÚV
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)