20.10.2009 | 11:52
Til þess eru vítin að varast þau
Gunnar Tómasson ætti að vita hvað hann segir. Hann starfaði í fjöldamörg ár fyrir AGS í Bandaríkjunum og hafði margsinnis varað við því hruni sem peningastefnan leiddi til árið 2008. Varnaðarorð hans náðu ekki eyrum íslenskra stjórnvalda, því er nú verr og miður.
Nú varar Gunnar okkur enn og aftur við aðsteðjandi vanda og segir hvorki meira né minna en að raunveruleg hætta sé á þjóðargjaldþroti. Því miður virðast aðvörunarorð hans ekki berast þangað sem ákvarðanir eru teknar eða skyldu þau vera of stór biti að kyngja fyrir ráðalausa stjórnmálamenn og embættismenn?
Alþingismenn eru eins og óþekkir krakkar að rífast um það hver eigi sterkasta pabbann. Vandamálin eru yfirþyrmandi en þau leysast ekki með innihaldslausu orðagjálfri og ákvarðanafælni. Er til of mikils mælst að hlustað sé á Gunnar og mark tekið á orðum hans?
Krónuskuld í gjaldeyrisskuld við AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:35 | Facebook
Athugasemdir
Sammála þér.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 20.10.2009 kl. 14:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.