5.5.2009 | 09:43
Ferskir vindar
Samfylking og VG gengu samstíga til kosninga. Látið var líta út fyrir að lítill sem enginn ágreiningur væri um helstu stefnumál þó svo að allir með fullri meðvitund hafi vitað að himinn og haf bæri á milli í ESB málinu.
Nú hafa steingerðir leiðtogar þessara flokka setið á leynifundum í rúma viku og lítið sem ekkert látið eftir sér hafa um framgang stjórnarmyndunarviðræða. Þó gaf heilög Jóhanna sér augnablik til að senda þjóðinni kaldar kveðjur og hóta því að aðgerðum gegn óréttlætinu (greiðsluverkfalli) yrði mætt af fullri hörku og að fólk sem þannig krefðist almennra mannréttinda yrði sett út í kuldann.
Ég ætla rétt að vona að Jóhanna fari ekki sömu leið og Ingibjörg Sólrún að telja þá sem gagnrýna stefnu stjórnvalda ekki hluta af þjóðinni. Hún virðist allavega lítinn lærdóm hafa dregið af Búsáhaldabyltingunni þar sem m.a. var krafist lýðræðisumbóta, gagnsæi og heiðarlegrar stjórnsýslu auk uppgjörs við spillta fortíð. Sem betur fer mun Borgarahreyfingin sjá til þess að Jóhanna og Steingrímur haldi jarðsambandi við þjóðina sem kaus þau enn eina ferðina á þing. Samtals hafa þau tvö setið 57 ár á Alþingi!
Aðgerðir ríkisstjórnar ganga of skammt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég hef enga trú á atvinnustjórnmálamönnum. Þeir hafa aðeins eina hagsmuni; sína eigin. Og sannleikurinn er þeim ekki heilagur, heldur hagsmunir þeirra sjálfra.
Fari þetta pakk og veri; nú þarf alvöru byltingu!
Skorrdal (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 11:38
Breytinga er þörf. Vonandi standa þingmennirnir okkar sig betur en þessir gömlu. Ég hlakka til þess að sjá til þeirra á þinginu.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.5.2009 kl. 01:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.