13.3.2012 | 15:28
Er stefna Vigdísar sú sama og stefna Framsóknarflokksins?
Vigdís Hauksdóttir hefur lýst sig mjög andsnúna því að þjóðin greiði atkvæði um tillögur Stjórnlagaráðs að endurskoðaðri stjórnarskrá. Hún lítur svo á að alþingismenn eigi einir að fara með það hlutverk þó svo að tilraunir til þess í næstum 67 ár hafi takmörkuðum árangri skilað. Þess vegna hefur hún reynt að spyrna við þeirri viðleitni að leita álits þjóðarinnar á umræddum tillögum. Vigdís hefur hins vegar ekki mér vitandi tilgreint þau atriði í tillögunum sem eru henni svo mjög á móti skapi.
Þetta er sérlega einkennilegt í ljósi þess að Vigdís var kosin á þing á grundvelli kosningastefnuskrár þar sem segir í undirfyrirsögn: "Íslendingar þurfa að setja lýðveldinu nýja stjórnarskrá. Stjórnarskrá sem tryggir sjálfstæði Alþingis og setur framkvæmdavaldinu skorður." Einnig segir í sama plaggi: "Við viljum að ný og nútímaleg stjórnarskrá verði samin af stjórnlagaþingi þar sem eiga sæti þjóðkjörnir fulltrúar."
Vonandi sér Vigdís sér fært að mæta á fundi Stjórnarskrárfélagsins sem almennur borgari og segja álit sitt, t.d. á 34. gr. frumvarpsins sem verður tekið sérstaklega fyrir á fundi í kvöld.
Fyrsti fundurinn verður haldinn í Iðnó í kvöld, þriðjudagskvöld kl. 20.00:
Kvótakerfið og nýja stjórnarskráin - Hvaða áhrif hefði ný stjórnarskrá á fiskveiðistjórnunarkerfið?
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Þórir Baldursson tónlistarmaður leikur stjórnlög af fingrum fram á Hammond-orgel meðan fundargestir koma sér fyrir.
Frummælendur og þátttakendur í pallborðsumræðum:
Fundarstjóri: Katrín Oddsdóttir, lögmaður og fulltrúi úr Stjórnlagaráði.
Til grundvallar yfirskrift fundarins er 34. gr. frumvarps Stjórnlagaráðs að endurskoðaðri stjórnarskrá.
Í brennidepli er sem sagt fiskveiðistjórnunarkerfið eins og það gæti litið út, yrði frumvarp að endurskoðaðri stjórnarskrá að veruleika.
Kvótakerfið og nýja stjórnarskráin - Hvaða áhrif hefði ný stjórnarskrá á fiskveiðistjórnunarkerfið?
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Þórir Baldursson tónlistarmaður leikur stjórnlög af fingrum fram á Hammond-orgel meðan fundargestir koma sér fyrir.
Frummælendur og þátttakendur í pallborðsumræðum:
- Friðrik Friðriksson, lögfræðingur LÍÚ
- Ólína Þorvarðardóttir, alþingismaður
- Örn Pálsson, framkv.stj. Landssamband smábátaeigenda
- Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur
- Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður
Til grundvallar yfirskrift fundarins er 34. gr. frumvarps Stjórnlagaráðs að endurskoðaðri stjórnarskrá.
Í brennidepli er sem sagt fiskveiðistjórnunarkerfið eins og það gæti litið út, yrði frumvarp að endurskoðaðri stjórnarskrá að veruleika.
Neitar að hafa brotið þingsköp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:40 | Facebook
Athugasemdir
Líklega á engin orðabók á neinu tungumáli orð yfir fólk eins og Vigdísi Hauksdóttur. Gott og rétt að fjalla um veiðistjórnunarkerfið. Allir eru sammála um að það þurfi að hafa stjórn á fiskveiðum. Ágreiningurinn stendur um tvennt. Í fyrsta lagi um hina vísindalegu hlið, sbr. annarsvegar kenningar Hafró og hinsvegar Jóns Kristjánssonar og annarra, sem eru svipaðrar skoðunar. Í öðru lagi hvernig eigi að ráðstafa leyfum til að veiða það magn, sem menn komast að raun um að skynsamlegt sé að veiða. Það á kannski ekki við að nefna það hér, að það er meiri þörf á að í nýrri stjórnarskrá séu ákvæði um fjölskipaðan stjórnlagadómstól og hvernig fólk sé valið í hann, heldur en hvort við höfum forseta og hvaða valdheimildir hann hefur.
Quinteiras (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 15:57
Jú, jú mikil ósköp Quinteiras, flestar orðabækur eiga helling af orðum sem dekka heilastarfsemi þessarar konu.
Í Íslenskum orðabókum er t.d. orðið -kjáni- vægasta brúklega orðið yfir Vigdísi. Margir telja það of væga skilgreiningu, og engin hörgull er á sterkari orðum, kjósi menn svo.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.3.2012 kl. 16:34
Það er vissulega sérlega einkennilegt að beina kastljósi að manneskju sem er ekki stjórn. En kannski þægilegt fyrir suma.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 14.3.2012 kl. 12:54
Er stjórnarandstöðu þingmenn yfir gagnrýni hafnir Vigdís? En þar fyrir utan þá þarf enginn að beina kastljósinu að Vigdísi, það sér hún um sjálf .....og baða sig í því.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.3.2012 kl. 08:59
Vigdís þessi er og verður einhvert furðulegasta fyrirbæri sem tekið hefur sæti á Alþingi.
Hún er einn versti gallagripur sem valist hefur sem þingmaður eða væri kannski viðrini betri lýsising á fyrirbæri þessu?
Guðjón Sigþór Jensson, 15.3.2012 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.