29.6.2010 | 11:20
Dýrt skal það vera
Tilgangurinn með þessum ákærum er vafalaust að hræða almenna borgara til hlýðni. Eflaust munu sumir héðan í frá hugsa sig um tvisvar áður en þeir stunda frammíköll á þingpöllum líkt og Össur Skarphéðinsson forðum daga áður en hann fékk vel borgaða vinnu við svipaða iðju.
Þessi réttarhöld gera því miður lítið annað en að draga úr tiltrú almennings á dómstólunum. Jú, og að kosta fúlgur fjár, því að í hvert einasta skipti mætir stór hópur lögfræðinga á vaktina auk hins vanhæfa saksóknara nr. 2 og heill herskari af lögreglumönnum þeim til halds og trausts. Og héðan í frá bætast tveir embættisdómarar við þann eina sem fyrir var!

Segir saksóknara vanhæfan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.