25.6.2010 | 15:56
Fráleit ummæli
Miðað við málflutning ráðherrans lengst af var hann alveg sáttur við að dómstólar hefðu úrskurðarvald í þessi mikla deilumáli sem varðar tugþúsundir einstaklinga. Nú kveður við annan tón og ljóst að ríkisstjórnin var ekki viðbúin þessari niðurstöðu, svo ótrúlegt sem það kann að virðast.
Gylfi Magnússon er hluti af framkvæmdavaldinu sem hefur verið legið á hálsi að valta yfir löggjafarvaldið. Nú hikar hann ekki við að leggja dómsvaldinu línurnar með svo ótvíræðum skilaboðum og gerir í leiðinni lítið úr áliti margra valinkunnra lögspekinga. Það er fullkomlega óeðlilegt og því ætti Gylfi að víkja úr sæti sínu sem fyrst.
Fjarstæðukennd niðurstaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:19 | Facebook
Athugasemdir
Gæti ekki verið meira sammála !
Baldur Borgþórsson, 25.6.2010 kl. 18:47
Hæ Siggi
nennirðu að hfa samband við okkur Ólaf - út af mynd Ullu : ) minn sími er 8200 575
hlakka til að heyra frá þér
Guðrún Péturs (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 22:59
Sæll Siggi.
Þetta eru fáránleg ummæli viðkomandi ráðherra sem endranær. Maðurinn er fífl og fáviti og þar við situr. Hann er sagður óflokksbundinn, en hann er samt forkólfur í samspillingunni.
Kv. SV
Sigurjón, 26.6.2010 kl. 03:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.