Dagur #5

Nú hefur DV grafið upp að Icesave-peningarnir  hafi farið í endurfjármögnun á útistandandi lánum gamla Landsbankans. Þannig eiga um 1.000.000 milljónir af sparifé 300.000 Breta og 125.000 Hollendinga að hafa farið í að halda íslenskum banka á floti eftir að í óefni var komið.

Nú er brýnt að skilanefnd Landsbankans staðfesti þessar upplýsingar eða leiðrétti. Íslendingar eiga að greiða atkvæði um Icesave-samning III í þjóðaratkvæðagreiðslu innan tveggja mánaða og eiga skilyrðislausan rétt á að mikilvægum upplýsingum sé ekki haldið leyndum fyrir þeim.

Icesave-bandiðEinnig væri vel við hæfi að upplýst verði um tilraunir stjórnvalda að endurheimta fé frá helstu eigendum og stjórnendum gamla Landsbankans. Varla getur nokkur vafi leikið á því að um svikamyllu var að ræða.

mbl.is 50% vilja að Ólafur Ragnar bjóði sig fram aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. febrúar 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband