29.10.2009 | 21:34
Er það ekki brot á lögum að veita ólögleg lán?
Ég sé mig í anda hafa sótt um lán eins og þessi hjá Glitni haustið 2007. Það hefði verið horft á mann eins og hvern annan vanvita.
Nú er það svo að einhver forréttindaklúbbur fékk milljónalán út á börnin sín því að varla hafa börnin sjálf rekið það mjög stíft að taka margar milljónir að láni til þess eins að eyða þeim í eitthvað álíka óskemmtilegt og stofnfjárhluti í Byr. Þetta hlýtur að flokkast undir misnotkun á börnum.
Ég geri þá kröfu að fá upplýsingar um það hvaða fólk þetta er fyrst að skuldirnar á að fella niður. Sömuleiðis geri ég þá kröfu að fá að vita hvaða snillingar í Glitni samþykktu þessa lánastarfsemi sem hlýtur að vera eitthvað meira en lítið bogið við.
Sagt var í fréttum á RÚV á lánin væru ólögmæt og þess vegna hefði verið ákveðið að falla frá því innheimta þau. Hér er komið fordæmi fyrir því að fella niður gengistryggð lán sem klárlega eru ólögmæt samkvæmt laganna hljóðan. Eini munurinn er að það er venjulegt fólk sem tók gengistryggðu lánin, ekki "fyrirmyndarforeldrar" úr kúlulánaklíkunni.
![]() |
Hyggst ekki innheimta lánin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.10.2009 | 14:31
Er í lagi að slökkva aðeins á reykvélinni?
![]() |
Íhugar mál gegn Straumi Burðarás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2009 | 14:01
Reykvélin á fullu
Fyrir ári síðan var efnahagskerfið hrunið og farið að bera á reglulegum mótmælum á Austurvelli. "Raddir fólksins" stóðu fyrir ræðuhöldum á laugardögum þar sem m.a. háværar kröfur voru uppi um nýtt gildismat, nýtt lýðveldi, faglega stjórnsýslu og réttláta málsmeðferð í tengslum við hrunið.
Í október 2009 er lítið rætt um nýtt lýðveldi og nýja stjórnarskrá. Engin fjárveiting er á fjárlögum til stjórnlagaþings þó svo að ríkisstjórnin sé með frumvarp í mýflugumynd til að þykjast hafa áhuga á málinu. Að sjálfsögðu ætla stjórnmálaflokkarnir hins vegar að reisa skjaldborg um eigin hag og myndu síst af öllu samþykkja stjórnlagaþing þar sem raunverulegum fulltrúum almennings væri falið að semja nýja stjórnarskrá með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.
Í október 2009 hefur enginn verið dæmdur fyrir þátt sinn í hruninu. Engar fréttir hafa borist af því að eignir hafi verið frystar, engir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald - þvert á móti, flestir þeir líklegustu eru enn á fullu í viðskiptum eða á kafi í stjórnmálum. Vissulega óttast sumir skýrslu rannsóknarnefndarinnar en sá ótti er ástæðulaus því að skýrslan sú mun í framtíðinni fyrst og fremst verða viðfangsefni sagnfræðinga, en ekki lögfræðinga og dómara.
Í október 2009 er hins vegar enn verið að nota bankaleynd til að hjúpa alls kyns gjörnina leyndarhjúpi og veita ýmsum aðilum sérstaka fyrirgreiðslu. Munurinn er bara sá að bankarnir eru nú á forsjá ríkisins og skilanefnda sem geta ráðið ráðum sínum án þess að gagnsæi eða upplýsingaskylda sé þrándur í götu. Það er ekki einu sinni svo gott að hluthafar eins og Vilhjálmur Bjarnason geti haldið uppi beittri gagnrýni.
Nokkur nýleg dæmi sem mbl.is hefur að mestu kosið að láta hjá liggja að fjalla um:
Afskriftir lána til forgangsbarna - hverjir skyldu ábyrgðarmenn þeirra vera? BANKALEYND!
Kennitöluflakk með aðstoð Landsbankans - BANKALEYND!
Nýi upplýsingafulltrúi Landsbankans - FAGLEG RÁÐNING?
Umbunað fyrir innherjaviðskipti - STJÓRNSÝSLAN SÉR UM SÍNA!
Sauðfjárrækt í Arnarnesinu - BANKALEYND!
Bara svo því sé haldið til haga þá er bankaleynd hugsuð til að vernda viðskiptahagsmuni en ekki til að fela siðlaust athæfi forréttindafólks! Það eru bara ekki allir með sömu hagsmunina þegar kemur að bönkunum sjálfum.
Hættum að vera meðvirk og lesum fjölmiðla sem standa undir nafni!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)