Ríkisstjórnin er ábyrg!

Ég lýsi ábyrgð á ríkisstjórnina. Það er alveg klárt mál að þeir fulltrúar fólksins í landinu sem brugðust skyldum sínum þurfa að svara fyrir misheppnaðar aðgerðir sínar eða aðgerðaleysi. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt að sömu aðilar þykjast nú vera að finna lausnir út úr eigin klúðri.

R.I.P.5-6 vikur eru liðnar síðan allt fjármálakerfið hrundi og ríkisstjórnin byrjaði á feluleiknum sem ekki sér enn fyrir endann á. Að sjálfsögðu hefði þá strax átt að koma á fót krísustjórn þar sem opið væri fyrir allar góðar hugmyndir þeirra ágætu sérfræðinga sem við eigum. Heildaráætlun um björgunaraðgerðir hefði átt að liggja fyrir í lok október og enginn að velkjast í nokkrum vafa um að skynsamlega væri staðið að öllum aðgerðum.

Fólk verður að fara að vakna og láta heyra í sér. Það er ekki nóg að hanga heima og fjargviðrast yfir ástandinu. Þið sem heima sitjið eigið ef til vill ekki betra skilið!

Burt með spillingarliðið!


mbl.is Staðan er grafalvarleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasti Framsóknarmaðurinn

Ég veit svei mér þá ekki hvað Framsóknarflokkurinn ætti til bragðs að taka í baráttu sinni við óumflýjanleg örlög sín. Guðni er eins og síðasti geirfuglinn og væri sennilega best geymdur uppstoppaður í viðhafnarbúningi. Aðrir helstu forkólfar flokksins tengjast spillingarmálum, einkavinavæðingu, klíkuskap, bitlingum, baktjaldamakki og fyrirgreiðslupólitík svo eitthvað sé nefnt.

Horfinn minnisvarðiNokkur helstu "afrek" flokksins í ríkisstjórn síðustu ára sem hækja íhaldsins snúast um misheppnaða einkavæðingu bankanna, afnám hátekjuskatts og lækkun virðisaukaskatts á þennslutímum, 90% húsnæðislán, stuðning við innrásina í Írak, útsölu á náttúruauðlindum (lowest energy prices), gjaldfellingu umhverfismats, stríð við öryrkja og fatlaða, o.s.frv.

Vinur minn, hann Hallur Magnússon vill kalla til nýja ESB sinnaða forystusveit með þá Binga, Óskar Bergsson, Pál Magnússon og fleiri við stjórnvölinn. Því miður er stuttur ferill þessa fólks nú þegar blóði drifinn og bakstungur og baktjaldamakk líklega það sem flokkurinn þarf síst á að halda.
 
Glaðir bankaeigendurÉg velti því fyrir mér hvort að Framsóknarflokkurinn eigi yfirleitt nokkurt erindi í hinu "Nýja Íslandi"? Hann er samdauna öllu því illa sem yfir okkur hefur gengið að undanförnu og mun aldrei geta hreinsað sig af því.

 


mbl.is Guðni einn á báti?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband