Bruðl og vanhæfi

Það fær hárin til að rísa á höfðinu á fólki að sjá hvernig rekstri stjórnmálaflokkanna hefur verið háttað. Þrátt fyrir hundruði milljóna framlög úr ríkissjóði tekst engum þeirra að halda rekstrinum nálægt núllinu. Á árinu 2007 voru allir flokkarnir með tölu reknir með tugmilljóna tapi og í tilfelli Samfylkingarinnar um 85 milljónir!

Hvernig á fólk að geta treyst þessum flokkum til að stjórna þjóðarbúinu þegar þau geta ekki einu sinni komist klakklaust frá eigin rekstri á hápunkti gróðærisins?

Borgarahreyfingin fær ekki krónu með gati frá opinberum aðilum og þarf að horfa í hverja einustu krónu sem eytt er í kosningabaráttunni. Það er vissulega bæði ólýðræðislegt og ósanngjarnt en samt sem áður hollt veganesti fyrir hugsjónafólk sem vill sjá breytingar í stjórnkerfinu. Það getur allavega enginn kennt Borgarahreyfingunni um að hafa þegið fé fyrir sérstakar fyrirgreiðslur eða mútur eins og það kallast í flestum öðrum löndum.

 

X-O gegn flokksræði


mbl.is Flokkarnir skulda hálfan milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr þetta er mjög ósanngjarnt. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.4.2009 kl. 01:19

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Eftirfarandi er virkilega góður punktur hjá þér: „Hvernig á fólk að geta treyst þessum flokkum til að stjórna þjóðarbúinu þegar þau geta ekki einu sinni komist klakklaust frá eigin rekstri á hápunkti gróðærisins?“

Rakel Sigurgeirsdóttir, 12.4.2009 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband