Það bítur ekkert á BB

Gamli mótmælandinn Öskur Skarphéðinsson hljómar nú eins og tóm tunna þegar hann lætur út úr sér: "Ég segi eins og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra: Ég útiloka ekkert í þeim efnum". Það vekur með manni ónotahroll þegar gamlir róttæklingar eru farnir að vitna í ummæli Björns Bjarnasonar.

The terrible threeReyndar er það eftirtektarvert hvað BB virðist lítið vilja ræða við fjölmiðla og borgara þessa lands. Á myndbandinu sást hann banda frá sér spurningum fréttamanna og strunsa sína leið. Ekki sá hann heldur ástæðu til að mæta með félögum sínum á borgarafundinn í Háskólabíói fyrir 2 vikum síðan. Hins vegar er hann búinn að leggja fram frumvarp um almenn hegningarlög sem taka á gildi 1. jan. 2009, sjá umfjöllun hér. Þar er m.a. kveðið á um auknar heimildir lögreglu til valdbeitingar og eignaupptöku og það sem kallað er "forvirkar rannsóknarheimildir". Ætli flestir myndu ekki kalla það hleranir eða persónunjósnir?

Rétt er að minna á að rúmlega 2.500 kjósendur Sjálfstæðisflokksins í kjördæmi BB strikuðu yfir nafn hans í síðustu kosningum. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann fengi áfram að sitja í sæti dómsmálaráðherra. Hér er kominn einlægur aðdáandi repúblikanaflokksins í BNA og G.W.Bush. Fáir kusu hann og enn færri vildu hann. Það bítur ekkert á þennan mann!


mbl.is Mótmælendur eiga ekki að bíta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg SoS

Ja hérna hér! Hér gefur þú mér aldeilis tækifæri til að upplýsast. Takk!

Velkominn til mín sem bloggvinur, Sigurður.

Hlýjar samstöðukveðjur, Ingibjörg

Ingibjörg SoS, 9.12.2008 kl. 16:34

2 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Ekki líst mér á þessi nýju lög - þau eru ekki í anda þess sem koma skal þegar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur eru búnir að missa tökin. Hið nýja Ísland - þar sem opin og lýðræðisleg stjórnsýsla mun ríkja. En ef ekkert mun breytast og spillingar- og gróðaöflin halda áfram í valdastöðum þá mun ekki veita af öflugri óeirðalögreglu (eða ólög og óreglu) og for- og framvirkum rannsóknarheimildum.

Hjálmtýr V Heiðdal, 11.12.2008 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband