Den tid, den sorg

Þá vitum við það - Geir hefur tvo kosti og báða slæma. Annars vegar að fara gegn vilja 90% þjóðarinnar, samstarfsflokksins í ríkisstjórn, Heimdalls, verkalýðsfélaganna og fl. Hins vegar að Davíð fari aftur í framboð.

Hann hlýtur að meta það svo að Sjálfstæðisflokkurinn klofni í tvo eða jafnvel fleiri hluta og að það sé það versta sem gæti gerst. Þannig lætur hann hagsmuni flokksins ganga fyrir hagsmunum fólksins í landinu.

Tveir vinir og annar á leið í fríEn er þetta annars ekki dæmigert fyrir Davíð - viðtal í Fyens Stiftstiende!? Eins og svo oft áður lætur hann orðin berast manna á milli vitandi að þau rata alltaf rétta leið. Nú ef hann gerir alvöru úr hótun sinni þá verður það bara "Den tid, den sorg".

 


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Af tvennu illu er skárra að hafa karlskrattann alfarið í pólitík heldur en að hafa hann í þessari pólitík sem hann er núna.

Haraldur Bjarnason, 5.12.2008 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband