Í boði Bláu krumlunnar

Enn er Sjálfstæðisflokkurinn að þrengja að RÚV - núna á að segja upp 44 starfsmönnum (verktakar eru að sjálfsögðu taldir með) en örugglega engum stjórnendum. Frumvarp menntamálaráðherra sem hefur óhjákvæmilegan niðurskurð í för með sér hefur enn ekki verið sent þingflokkunum en samt er búið að tilkynna um niðurskurðinn meðal starfsmanna RÚV - til hvers halda alþingismenn eiginlega að þeir séu?

Alþingi hefur afhent framkvæmdavaldinu alræðisvald og er í raun orðinn kjaftaklúbbur af síðustu sort. Af hverju er þingmennska ekki bara gerð að hlutastarfi - einn dag í viku til að samþykkja frumvörpin sem ráðherrarnir afhenda? Það myndi eflaust sparast milljarður þar eða tveir. Best væri að loka búllunni og opna þar götueldhús.

Spara með að senda út í svart/hvítu?Útvarpsstjóri þiggur þreföld þingmannalaun fyrir það hlutskipti sitt að vera málaliði "Bláu krumlunnar". Heyrst hefur að hann muni lækka um 10% í launum ásamt öðrum æðstu yfirmönnum RÚV en af hverju er aldrei hagrætt með því að fækka yfirmönnum? Öðrum starfsmönnum er fækkað og munu margir þurfa að taka á sig umtalsverðar launalækkanir.

Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að hætta fyrr en öllu hefur verið komið í þrot?


mbl.is 700 milljóna sparnaður hjá RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband