Ragnheiður Elín dælir út froðu

Vikulokin á Rás 1 í morgun um bankana:

Ragnheiður Elín Árnadóttir: "Ég er algjörlega ósammála Hallgrími Helgasyni hér við hliðina á mér um það að það sé alltaf best að ríkið eigi þessi fyrirtæki."

Hallgrímur Helgason: "En hvað kenndi hrunið okkur?"

REÁ: "Hrunið kenndi okkur að það var ekki endilega einkavæðing bankanna, vegna þess að það voru bankar sem voru ekki einkavæddir á sínum tíma sem hafa farið illa; bæði hér og annars staðar. Maður má ekki kenna því um."

HH: "Bankarnir fóru á hausinn. Þeir voru seldir eða gefnir óábyrgum mönnum, flokksgæðingum."

REÁ: "Við höfum sagt að varðandi einkavæðinguna að það eru ákveðin atriði þar sem fóru úrskeiðis við framkvæmdina. En einkavæðingin sem slík, ég er ekki tilbúin til að kenna henni um hrun bankanna, og skýrslan er ekki að gera það heldur."

HH: "Mér finnst við ekkert vera að læra af þessu."

og skömmu síðar um einkavæðingu orkuauðlindanna:

Skúli Helgason: "Er þetta ekki dæmigert mál sem ætti erindi inn í þjóðaratkvæðagreiðslu? Vill þjóðin að einkaaðilar...?"

Ragnheiður Elín Árnadóttir: "Svo framarlega meðan að umræðan væri opin og upplýst og ekki á þessum villigötum sem mér finnst umræðan oft verða, með alls konar fullyrðingum t.d. í sambandi við þetta Magma dæmi. Lilja Mósesdóttir kemur upp í ræðustól á þinginu og segir að þetta muni leiða til þess að rafmagnsverð á Suðurnesjum muni hækka. Það er bara akkúrat engin hætta á því og ef að það er, ef að þessi 15% af orkuverðinu sem að HS orka kemur með út í reikninginn (sic.), ef að það myndi hækka, þá get ég sem íbúi í Reykjanesbæ hringt í orkusöluna eða Orkuveitu Reykjavíkur eða einhvern annan."

Frábær hugmynd hjá Ragnheiði Elínu. Úr því sem komið er ættu íbúar Reykjanesbæjar alvarlega að hugsa sinn gang. Hitaveita Suðurnesja var byggð fyrir skattfé þeirra sjálfra. Síðar var hún seld völdum einkaaðilum, fyrst innlendum sem borguðu fleiri tugi milljóna til Sjálfstæðisflokksins og einstakra frambjóðena hans, og síðar erlendum sem við vitum minna um. Nú situr sveitarfélagið eftir með botnlausar skuldir og ekkert orkufyrirtæki. Ein aðaleign Reykjanesbæjar er skuldabréf upp á 5.000 milljónir sem hugsanlega fæst aldrei greitt og mun virka sem snara utan um háls ráðamanna á svæðinu og íbúanna allra.

 


mbl.is Vopnlausir stjórnmálaflokkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er ástæðan fyrir því að fólk er ekki tilbúið til að kjósa sömu gömlu flokkana hér í Reykjavík.  Þá er hægt að velja grínframboðið eða Reykjavíkurframboðið xE sem er nýtt framboð óháðra borgara sem vilja láta til sín taka.

Sif (IP-tala skráð) 22.5.2010 kl. 18:38

2 identicon

Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur vísvitandi rangt eftir mér. Ég sagði að orkuverð til almennings myndi hækka. HS orka selur bæði rafmagn og heitt vatn. Íbúar Reykjaness geta ekki skipt yfir í rafmagnsupphitun án mikils tilkostnaðar og það mun Magma nýta sér.

Lilja Mósesdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2010 kl. 10:15

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Það er hámarkshraði á görum borgarinnar sem og á vegum úti - og reyndar hvar sem gatnakerfi er -

Er það merki um ranga stefnu í þeim málum hver margir eru teknir fyrir hraðakstur??

Það er bannað að aka undir áhrifum áfengis - er það merki um ranga stefnu hve margir eru teknir ölvaðir undir stýri ??

Að sjálfsögðu ekki - sú staðreynd að ýmislegt fór úrskeiðis er bundið hópi fólks sem "ók of hratt drukkið".

Varðandi HS - Umræðan hefur verið fáránleg - RÚV sem er fjölmiðill stjórnarinnar lét Ögmundi Jónassyni eftir sviðið í Kastljósi þar sem hann hraunaði yfir Sjálfstæðisflokkinn og Árna Sigfússon vegna samningsins. Árni óskaði eftir því að fá að koma að leiðréttingum daginn eftir - NEI ÞAÐ ER OF STUTT Í KOSNINGAR - síðan var Steingrími J hleypt í Kastljósið þá um kvöldið þar sem hann endurtók leik Ögmundar.

Eðlileg umræða - varla - hlutleysi í kosningum varla - marktækur fjölmiðill verla -  skil ekki hversvegna Jón Ásgeir er ekki búinn að yfirtaka þennan miðil líka -

Ólafur Ingi Hrólfsson, 24.5.2010 kl. 04:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband