Við nánari skoðun...

Ég held að fólk ætti fyrst af öllu að spá í hvort að núverandi fyrirkomulag hafi reynst okkur Reykvíkingum vel. Hér sitja 15 fulltrúar með tæp 7% atkvæða hver. 8 þeirra mynda svokallaðan meirihluta sem öllu ræður á meðan að hinir 7 ráða litlu sem engu. Nefndir og ráð eru skipuð á sama hátt - fulltrúar viðkomandi flokka í sömu hlutföllum. Oft á tíðum sitja þar börn borgarfulltrúanna enda gera þau bara það sem þeim er sagt og fá greitt fyrir.

Væri ekki betra að fá fleiri kjörna fulltrúa að borðinu þannig að hægt væri að tala um raunverulegt íbúalýðræði fremur en það flokksræði sem við höfum búið við? Það yrði örugglega ekki um fulla vinnu að ræða heldur e-s konar stjórnarsetu og greitt samkvæmt því. Um framkvæmdahliðina sæi fólk sem ráðið væri á faglegum forsendum. Heildarkostnaðurinn þyrfti ekki að vera hærri en sparnaður næðist þar sem að minni líkur væru á spillingu.

Ég held að þetta frumvarp sé vel þess virði að það sé skoðað með opnum augum. Í leiðinni teldi ég réttast að skoða sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarasvæðinu þar sem að sameiginlega hagsmuni má víða finna.


mbl.is Vilja að borgarfulltrúar verði 61
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Miðað við blogg annara við þessa frétt gæti ég trúað að þú hafir verið sá eini sem last frumvarpið og lögin sem þeim er ætlað að breyta.  Mér finnst hugmyndin áhugaverð en hefði viljað sjá það fara helmingi styttra en það gerir, og svo skoða framhaldið eftir einn til tvo áratugi.

Axel Þór Kolbeinsson, 9.10.2009 kl. 14:45

2 Smámynd: Sigurður Hrellir

Satt er það, ég las frumvarpið, enda nokkuð stuttaralegt. Ég er ansi hræddur um að flestir sem tjá sig hér lesi varla fréttina til enda, hvað þá frumvarpið.

Eftir því sem ég hugsa meira um þetta finnst mér það skref í rétta átt. Ef Stór-Reykjavík sameinaðist í eitt sveitarfélag held ég að 61 fulltrúi væri ekki fjarri lagi. Þeir myndu mæta á fundi 1-2 daga í viku og t.d. fá greitt ákveðið gjald fyrir hvert skipti. Þannig yrði þetta líklegast ódýrara en núna.

Sigurður Hrellir, 9.10.2009 kl. 16:12

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Axel Þór Kolbeinsson, 9.10.2009 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband