Stjórnlagaþing án stjórnmálaflokka

Sjálfstæðismenn virðast ekki sjá neinn tilgang með því að þjóðin fái nýja stjórnarskrá. Þeir hrópa hátt að það sé ekki það sem hún þarfnist og nefna uppblásnar kostnaðartölur til að styðja sinn slæma málstað.

Reyndar er frumvarp ríkisstjórnarinnar hreint ekki gallalaust enda væri það saga til næsta bæjar ef Framsóknarflokkurinn ætlaði sér ekki að fá bita af kökunni. Hér fyrir neðan er hins vegar útfærsla sem "Samtök um lýðræði og almannahag" sendi frá sér og Borgarahreyfingin hefur nú gert að sinni. Kostnaður yrði allavega ekki neitt í líkingu við það sem Birgir Ármannsson heldur fram í fréttinni. Skyldi Birgir vera jafn slakur í reikningi og hann er sem málsvari almennings á Alþingi?

 

Kjör til stjórnlagaþings og endurskoðun stjórnarskrár 

Tilkynning frá Samtökum um lýðræði og almannahag 
 

Samtök um lýðræði og almannahag eru samtök fólks sem er fyrst og fremst lýðræðissinnað og krefst þess að Íslandi verði hér eftir stjórnað með hagsmuni almennings í huga.  Samtökin krefjast þess að það fari fram endurskoðun á stjórnarskránni og að sú endurskoðun verði gerð af almenningi og fyrir almenning. 

Samtökin eru óháð stjórnmálaflokkum og berjast fyrir almannahag og lýðræðis- samfélagi sem hafnar forræði og forréttindum stjórnmálaflokka samtímans.  Samtökin telja augljóst að ríkisstjórnir Íslands til langs tíma og stjórnmálaflokkarnir að baki þeim hafi glatað öllum tengslum við raunverulegt líf fólksins í landinu. 

Samtökin telja einnig að allir núverandi stjórnmálaflokkar séu með einum eða öðrum hætti bundnir á klafa sérhagsmuna og/eða hugmyndafræði sem sé andstæð víðtækum almannahagsmunum og að augljóst sé að nánast öll stjórnarandstaða, hverju nafni sem hún nefnist, bíði ætíð og aðeins eftir að komast að nægtaborðinu sjálf. 

Samtökin telja endurskoðaða stjórnarskrá brýnasta mál samtímans og eru sannfærð um að aldrei fyrr hafi verið eins mikil þörf á að endurskoða stjórnarskrána og endurreisa lýðræði á Íslandi, ef landið eigi áfram að teljast til vestrænna lýðræðisríkja. 

Til að hagsmuna almennings verði gætt við endurskoðun stjórnarskrárinnar telja Samtökin grundvallaratriði að sú vinna fari fram á sérstöku stjórnlagaþingi sem verður án beinnar aðkomu stjórnmálaflokka og verði með eftirfarandi hætti: 

  • Valið verði á stjórnlagaþing úr röðum almennings samkvæmt hefðbundnu 600 manna úrtaki frá Gallup og einnig verði valdir eins margir til vara og þurfa þykir vegna forfalla, áhugaleysis eða vanhæfis.  Stjórnlagaþingseta verði fullt starf.
 
  • Stjórnlagaþingið skal skipulagt og verkinu stýrt af 5 manna sérfræðingahópi með sérþekkingu á stjórnskipunarrétti, mannréttindamálum og lýðræðisumbótum.  Æskilegt er að a.m.k. 2 af hópnum séu erlendir sérfræðingar.
 
  • Stjórnlagaþingið skal endurskoða allar greinar stjórnarskrárinnar og hafa til hliðsjónar þá vinnu sem þegar hefur verið unnin í stjórnarskrárnefnd sem og taka við tillögum frá almenningi, jafnt einstaklingum sem hópum.  Fyrri vinnu stjórnarskrárnefndar og aðsendum tillögum skal finna stað ef hægt er, en þó ætíð með almannahag, lýðræði og mannréttindi að leiðarljósi.
 
  • Endurskoðun stjórnarskrárinnar skal lokið á 3 mánuðum, drögin send til umsagnar hjá innlendum og erlendum sérfræðingum og tilheyrandi alþjóðastofnunum og að því loknu lögð fram til víðtækrar kynningar í einn mánuð.
 
  • Að lokinni kynningu verður ný stjórnarskrá borin undir þjóðaratkvæði.

 


mbl.is Stjórnlagaþing fyrir 1,5 milljarða?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er huggun í að sjá þennan Birgi drulla upp í hnakkagróp hvað eftir annað fyrir hönd sjálfstæðisflokksins. Það gefur mér von um breytingar. Raunar tekst honum að fjórfalda þessar tölur. Hann signerar svo siðleysi sitt með að setja verðmiða á grunnréttindin. Það má kannski minna hann á að bara viðbótarfjárveiting til sérsveitarinnar var eitthvað um 300 milljónir á síðustu fjárlögum og að hvert útkall þeirra kostar um 8 milljónir og hafa þeir reynt að fjölga útköllum eftir megni til að lækka meðaltalið.

Það er varla að manni þyki annars tilhlýðilegt að ræða einhvern kostnað í þessu samhengi.  Ég vil svo minna á að aðgerðin við upptöku Evru, ein og sér kostar 140 milljarða, svona til að setja annað í þetta samhengi.

Kannski mætumst við á miðri leið einhventíma kollegi, en við verðum að vera sammála um sumt og sumt ekki, fram að því. Allavega fáum við sömu gæsabólurnar við að sjá og heyra slepjuna Birgi Ármannson.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.3.2009 kl. 03:01

2 identicon

Jú,, Sjálfgæðismenn ,,verða jú alltaf  '' Sjálfgæðismenn'',, Ekki minntust menn jafn mikið á peninga þegar sólundað var álíka upphæð vegna framboðs til Öryggisráðsins,, Fljótt gleymast syndir feðranna,,Hvað skyldi þvermóðskan ein hjá Davíð Oddsyni hafa kostað ,, þegar hann þráaðist við að hverfa úr Seðlabankanum,, Hvað eru 1500 miljónir í samanburði við þriggja billjónana handvömm átján ára stjórnunar,, Það fer fyrir brjóstið á Birgi ,hverjir sólunda fé,, fremur enn í hvað er sólundað til,,

Bimbó (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 08:38

3 Smámynd: Sigurður Hrellir

Fólk eins og Birgir fær mann til að hugsa um hvers konar uppeldisaðferðir eru viðhafðar innan Sjálfstæðisflokksins.

Ný stjórnarskrá mun ekki færa flokknum aukin völd, nema síður sé og þess vegna finnst þeim því fé illa varið sem "sóundað" er í svoleiðis vitleysu.

Sigurður Hrellir, 7.3.2009 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband